Þarf að verðleggja mengun 5. október 2009 02:00 Segir Íslendinga vera 15 til 20 árum á eftir nágrannalöndunum þegar kemur að mengunarsköttum. fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er hið besta mál. Við erum svona 15 til 20 árum á eftir nágrannaríkjunum í þessum málum,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, um ný orku-, umhverfis- og auðlindagjöld. Gjöldin eiga að skila 16 milljörðum í ríkiskassann á næsta ári. Árni segir nauðsynlegt að verðleggja orkuna rétt, greitt hafi verið allt of lágt verð fyrir hana. Sérstaklega verði að leggja skatta á orku sem sé mengandi. „Eitt af mikilvægustu atriðunum við að fást við loftslagsbreytingar er að gefa skýr skilaboð um að losun á kolefni kosti. Þannig leitar markaðurinn eftir leiðum til að draga úr losun. Við þurfum að stjórna þessu með skattlagningu og draga úr þeirri neyslu sem er skaðleg, en umbuna þeirri sem ekki er skaðleg,“ segir Árni. Forsvarsmenn álfyrirtækjanna kvörtuðu yfir gjöldunum í Fréttablaðinu í gær og töldu þau geta veitt rekstri þeirra þung högg. Árni segist ekki vorkenna þeim, fyrirtækin hafi grætt gríðarlega mikið á lágu gengi krónunnar. „Hvergi í hinum iðnvædda heimi er losun koltvísýrings leyfð nema gegn gjaldi. Menn eru ekki metnaðarfullir ef íslenskur iðnaður á að keppa við þriðja heiminn, Kína og Indland. Það verður að sýna að það borgi sig að framleiða á Íslandi, þrátt fyrir skatta.“- kóp
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Fleiri fréttir Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Sjá meira