Innlent

Margar slysagildrur í íbúðahverfum

Slysagildra við Blómvang í Hafnarfirði. Þarna átti slys sér stað síðastliðinn laugardag. Eins og sjá má er engin leið fyrir ökumann að sjá vegfaranda sem kemur af göngustígnum, sem er handan við hvíta vegginn, fyrr en um seinan.
Slysagildra við Blómvang í Hafnarfirði. Þarna átti slys sér stað síðastliðinn laugardag. Eins og sjá má er engin leið fyrir ökumann að sjá vegfaranda sem kemur af göngustígnum, sem er handan við hvíta vegginn, fyrr en um seinan.

Víða í íbúðahverfum á höfuðborgarsvæðinu leynast hreinar slysagildrur fyrir börn sem fara um á hjólum, hlaupabrettum eða tveimur jafnfljótum. Þetta er mat Einars Magnúsar Magnússonar frá Umferðarstofu, Valgarðs Valgarðssonar og Margeirs Sveinssonar frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í síðustu viku urðu tvö alvarleg slys í íbúðahverfum, í öðru tilfellinu var ekið á dreng sem fór hlaupandi milli tveggja kyrrstæðra bíla í Steinási í Garðabæ. Honum er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Landspítalans. Hitt var í Blómvangi í Hafnarfirði en þá var ekið á dreng sem kom á hlaupahjóli niður göngustíg sem lá þvert á akbraut. Þremenningarnir segja að eins og aðstæður eru þar sem slysið varð er vonlaust fyrir ökumann að bregðast þegar barn kemur rakleiðis af göngustígnum og út á götu.

„Viðbragðstíminn er nánast enginn," sagði Einar Magnús þegar hann skoðaði vettvang með blaðamanni. „Ökumaður sér ekki vegfarandann fyrr en tveir eða þrír metrar eru á milli þeirra." Margeir sá svo marga agnúa á göngustígnum að hann sagðist telja réttast að loka honum og vísa gangandi umferð eitthvert annað.

„Þetta er afar óheppilegt því svo er leiksvæði hérna rétt fyrir ofan," sagði hann og benti upp stíginn.

Valgarður og Margeir höfðu gert athugun á nokkrum íbúðahverfum og séð svo ekki var um villst að slysagildra sem þessi er ekkert einsdæmi. Þeir hvetja bæjar- og borgaryfirvöld til að setja girðingu meðfram stígunum og síðan tálma þar sem þeir mæta götunni svo að barn sem komi á ferð verði að hægja á sér áður en það fer út á götu. Heppilegast væri að tálmarnir vísuðu þannig að barnið yrði að snúa sér í átt að umferð þegar það er komið að götunni.

Þremenningarnir hvetja síðan alla ökumenn til að hafa aðgát en flestir eiga það til að keyra hraðar þegar veðrið hlýnar en með hlýnandi veðráttu eykst einnig umferð hjólandi barna.

jse@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×