Innlent

Brennuvargur stefndi fólki í hættu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nítján ára gamall piltur hefur verið ákærður fyrir að kveikja í fjölbýlishúsi að Jörvagrund 23 í Mosfellsbæ í október 2006. Pilturinn var 16 ára þegar meint brot var framið.

Samkvæmt ákæru kveikti pilturinn í plexigleri í stigagangi hússins og olli skemmdum á sameign, skemmdum á bifreið sem staðsett var á bifreiðastæði við húsið þegar eldurinn braust út, auk hættu á frekara eignatjóni.

Þá stefndi pilturinn átta íbúum á efri hæð hússins í hættu en þeim var bjargað af svölum því stigagangur hússins varð fljótlega alelda.

Málið var þingfest í morgun. Þar neitaði pilturinn því að hafa framið brotið af ásetningi. Saksóknari krefst þess að pilturinn verði dæmdur til refsinga en auk þess gerir Vátryggingafélag Íslands kröfu um að ákærði verði dæmdur til að greiða tæpar fimm milljónir í bætur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×