Innlent

Kannabis í kílóavís í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt kannabisræktun í Kópavogi. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar, staðfesti þetta í samtali við Vísi. Hann sagði ekki liggja fyrir um hve mikið magn sé að ræða en heimildir fréttastofu herma að um nokkur kíló af maríújana hafi verið að ræða.

Tveir menn eru í haldi vegna málsins og sæta þeir nú yfirheyrslum. Karl Steinar segir það skýrast síðar í dag hvort farið verði fram á gæsluvarðhald.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×