Innlent

Stjórnarandstöðuflokkarnir sameinast um ESB tillögu

Heimir Már Pétursson skrifar
Þreyfingar eiga sér stað milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um að flokkarnir leggi fram sameiginlega tillögu í Evrópumálum, sem gerir ráð fyrir aðildarumsókn, og þá jafnvel strax á morgun.

Í fyrramálið verður í fyrsta skipti tekin fyrir formleg stjórnartillaga um að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er vilji til þess innan Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks að flokkarnir standi saman að tillögu, sem jafnframt geri ráð fyrir aðildarumsókn, en þar sem skilyrði fyrir viðræðum verði útfærð með öðrum hætti en hjá stjórnarflokkunum. Vilji er til þess að þessi tillaga líti dagsins ljós strax í fyrramálið, en Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mælir fyrir stjórnartillög um málið klukkan tíu. Tvær umræður fara fram um þingsályktunartillögur en tillagan fer til meðferðar hjá utanríkismálanefnd milli umræðna.

Reikna má með að greinargerð með tillögunni, þar sem forsendur umsóknar Íslands eru tíundaðar, taki nokkrum breytingum í meðförum þingsins. Stjórnarflokkarnir stefna að því að endanleg niðurstaða um tillöguna liggi fyrir áður en sumarþingi lýkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×