Innlent

Framsókn leggur til þingsályktun um 20% afskriftir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins. GVA
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins. GVA
Framsóknarflokkurinn mun leggja fram tillögu á Alþingi um að fjármálaráðherra verði falið að framkvæma nauðsynlegar afskriftir á lánum til íslenskra heimila og rekstrarfyrirtækja um 20% af höfuðstól láns. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að afskriftunum vera lokið eigi síðar en 1. ágúst 2009.

Í greinagerð með tillögunni kemur frama að nánast öll lán íslenskra heimila og fyrirtækja séu annaðhvort tengd verðlagsvísitölu eða gengi erlendra gjaldmiðla. Með hruni íslenska bankakerfisins, og í aðdraganda þess, hafi orðið forsendubrestur á lánamarkaði. Fall á gengi íslensku krónunnar og mikil verðbólga í kjölfarið hafi orðið til þess að höfuðstóll umræddra lána hækkaði úr takti við allt sem áður hafði þekkst. Atburðirnir voru ófyrirsjáanlegir og færa má fyrir því rök að þeir hafi leitt til forsendubrests.

„Á það skal og bent að lánastofnanirnar voru í aðstöðu til að hafa áhrif á verðlagsþróun í landinu með útlánastarfsemi sinni og aðgerðum sem höfðu áhrif á gengi krónunnar. Þessar athafnir fjármálastofnana höfðu áhrif á höfuðstól lána til hækkunar og sköpuðu ójafnvægi í getu lánveitenda og lántaka til að verja hagsmuni sína. Hinir ófyrirséðu atburðir, sem og aðgerðir lánveitenda, urðu þannig til þess að hækka höfuðstól lána óeðlilega mikið," segir í greinagerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×