Boðið upp á gullkryddað risotto í forrétt Heimir Már Pétursson skrifar 27. maí 2009 18:45
Þegar veislan stóð sem hæst í útrásinni árið 2007 kepptust bankarnir við að gera vel við stærstu viðskiptavini sína. Í einni boðsferð Landsbankans var um 300 manna hópi meðal annars boðið upp á Risotto sem kryddað var með gulli. Í Mannlífi sem kemur út á morgun er grein þar sem greint er frá því hvernig bankarnir reyndu að toppa hver annan í að gera vel við helstu viðskiptavini sína og var þá oft engu til sparað. Septembermánuður 2007 var annasamur mánuður í þessum efnum hjá Landsbankanum, samkvæmt því sem segir í grein Mannlífs. í þeim mánuði opnaði bankinn útibú í Hong Kong sem átti að verða upphafið að útrás bankans í Asíu. Öllum helstu stjórnendum bankans, bankastjórunum Sigurjóni Árnasyni og Halldóri Kristjánssyni, bankaráðsmanninum Kjartani Gunnarssyni ásamt helstu viðskiptavinum innanlands og utan var flogið í veisluna. Gestirnir gistu að sjálfsögðu allir á fimm stjörnu hótelum og segir Mannlíf að gistikostnaðurinn einn og sér hafi verið um 24 milljónir króna. Flogið var með hundrað kílóa ísklump úr Vatnajökli og í aðalveislunni var boðið upp á heilsteiktan grís, eins og hjátrú Kínverja segir að boði gott gengi. Asíuævintýrið rann hins vegar fljótlega út í sandinn. Í sama mánuði voru leigðar tvær stórar farþegaþotur undir um 300 viðskiptavini bankans og aðrir gestir komu í um 20 einkaþotum, í samkvæmi Landsbankans í Mílanó á Ítalíu vegna opnunar útbús þar. Meðal gesta í ólíkum veislum bankans voru helstu auðmenn landsins eins og Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson, Pálmi Haraldsson, Magnús Ármann og Björgólfur Thor Björgólfsson, segir í Mannlífi. Fréttastofan hefur rætt við nokkra gesti í þessari ferð sem allir lýstu miklum íburði en enginn vildi koma fram undir nafni. Heimildarmaður Mannlífs segir hins vegar um veislu í 15. aldar hallargarði, að þar hafi verið boðið upp á risotto með gullflögum. "Ég hugsaði með mér að það væri ekki hægt að ganga lengra en éta gullið." Og síðar segir viðmælandi Mannlífs: "Ég hélt að það væru aðeins guðirnir sem borðuðu gull." Hann mælir reyndar ekki með því, gullið hafi verið dauft á bragðið:"Það er bara málmbragð af því,"bætir gesturinn við og segir að í veislunni hafi um fjögur til fimm hundruð Íslendingar gætt sér á risotto með gulli. Þessi ferð kostaði tugi milljóna enda verðið á gistingunni um 50 þúsund krónur fyrir nóttina á hvern mann. Landsbankinn var langt í frá einn um veisluhöld sem þessi því gömlu bankarnir héldu allir slíkar veislur, svo ekki sé minnst á veislur margra útrásarvíkinga á öðrum vettvangi.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira