Innlent

Endurreisn banka rædd í dag

Guðlaugur Þór Þórðarson hafði erindi sem erfiði og kom endurreisn bankanna á dagskrá viðskiptanefndar.
fréttablaðið/stefán
Guðlaugur Þór Þórðarson hafði erindi sem erfiði og kom endurreisn bankanna á dagskrá viðskiptanefndar. fréttablaðið/stefán

Formaður viðskiptanefndar ákvað í gær að taka endurreisn bankanna til umræðu á fundi nefndarinnar í dag, eftir að þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu að hafa ekki fengið tækifæri til þess að tjá sig um það í nefndinni.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hafði krafist fundar við fyrsta tækifæri, í ljósi ummæla sænska bankasérfræðingsins Mats Josefsson um að endurreisn bankanna kostaði 85 prósent af þjóðarframleiðslu. Niðurlægjandi væri fyrir þingheim að þurfa að læra um slíkt af Fréttablaðinu.

Guðlaugur Þór segist hafa beðið margoft um að endurreisn bankanna yrði rædd í nefndinni. VG hafi áður fyrr mikið rætt um gagnsæi og opna stjórnsýslu, en reyni nú að koma í veg fyrir umræðu. „Þetta er gagnsæið í framkvæmd,“ sagði hann.

Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, segir fjölmörg brýn mál á dagskrá nefndarinnar, sem tengist endurreisn bankanna. Til dæmis hafi forstjóri Fjármálaeftirlitsins verið boðaður á fundinn í dag.

Fleiri gagnrýndu dagskrárgerð þingsins almennt í gær. Birkir Jón Jónsson úr Framsókn harmaði til dæmis að þingið ætlaði að ræða um urðun á sorpi og erfðabreyttar lífverur, frekar en mál tengd efnahagshruninu. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×