Innlent

Gáfu 26 gervi-limi á Gasa

 Hópurinn sem hefur verið á Gasasvæði Palestínu síðustu daga snýr heim í kvöld. Á þremur dögum tókst þremur stoðtækjasmiðum á vegum Neyðarsöfnunar Íslands-Palestínu og OK Prosthetics að smíða alls 26 gervilimi á 24 fórnarlömb stríðsins í Palestínu.

Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Íslands-Palestínu, segir mikla gleði hafa fylgt því að sjá fólkið ganga að nýju. Íslenski hópurinn var kvaddur með viðhöfn af borgarstjóra og mættu margir limþeganna á athöfnina.

Sveinn segir að vonir séu bundnar við að verkefnið haldi áfram. Um þúsund manns skorti útlimi á Gasasvæðinu. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×