Lífeyrissjóðirnir rúnir trausti 27. maí 2009 15:18 Svarendur í könnuninni bera mikið traust til Háskóla Íslands. Mynd/ Stefán.
Um 77% aðspurðra segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands og Lögreglunnar. Sjö af hverjum tíu segjast bera mikið traust til Fréttastofu RÚV og Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 65% svarenda. Mikið skilur á milli ofangreindra fjögurra stofnana og annarra sem spurt var um í traustskönnun MMR dagana 7.-14. maí. Eingöngu 30,9% segjast bera mikið traust til stéttarfélaganna í landinu sem koma næst í röðinni á eftir Háskólanum í Reykjavík. Fjármálaeftirlitið og bankakerfið skrapa sem fyrr botninn hvað traust almennings áhrærir, en tæp 6% segjast bera mikið traust til þeirra. Athygli vekur þó að það fækkar nokkuð í hópi þeirra sem sögðust bera lítið traust til Fjármálaeftirlitsins og bankakerfisins frá því í könnun MMR í desember síðast liðnum. Þá sögðust 80,2% bera lítið traust til Fjármálaeftirlitsins samanborið við 70,1% nú og 80,1% sögðust bera lítið traust til bankakerfisins samanborið við 71,6% nú. Það fækkar sömuleiðis í hópi þeirra sem bera lítið traust til Ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans. Þannig sögðust 61,4% bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar í desember samanborið við 49,7% nú og 74,1% sögðust bera lítið traust til Seðlabankans í desember samanborið við 49,4% nú - sem er fækkun um heil 25 prósentustig. Að sama skapi fjölgar þeim um rúman helming sem segjast bera mikið traust til Seðlabankans. Það fer úr 9,8% í desember í 15,5%. Samkvæmt könnuninni hefur traust til Lífeyrissjóðanna dalað mikið. Þannig helmingaðist fjöldi þeirra sem sögðust bera mikið traust til lífeyrisjóðanna milli kannana. Það fór úr 30,5% í desember í 14,9% nú, á sama tíma og fjöldi þeirra sem sögðust bera lítið traust til lífeyrisjóðanna jókst úr 32,7% í 51,4%. Um 845 einstaklingar svöruðu könnun MMR en spurningar voru lagðar fyrir í gegnum síma og á netinu. Úrtak var valið með slembiaðferð úr þjóðskrá.
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Sjá meira