Cole hafnaði möguleika á að spila með Notts County Ómar Þorgeirsson skrifar 24. september 2009 14:45 Andy Cole. Nordic photos/AFP
Framherjinn Andy Cole greinir frá því í dálki sínum í dagblaðinu The Independent að hann hafi fengið óformlegt tilboð um að taka takkaskóna af hillunni til þess að spila með Notts County. Hann hafi hins vegar neitað boðinu og skilur ákvörðun góðvinar síns Sol Campbell að yfirgefa félagið mjög vel. „Ég rakst á Sven [Göran Eriksson, yfirmanna knattspyrnumála Hjá Notts County] fyrir nokkrum vikum og hann spurði mig strax hvort að ég væri ekki tilbúinn að byrja að spila aftur og taka þátt í þessu verkefni með Notts County. Ég þurfti nú ekki að hugsa mig lengi um og svaraði strax nei takk, áður en ég vissi fyrir víst hversu mikil alvara var í þessu hjá honum. Ég verð annars að segja að ég skil vel hvað Sol Campbell ætlaði sér með þessu ævintýri hjá Notts County. Ég veit að hann hefur hug á því að snúa sér að knattspyrnustjórn eftir að leikmannaferlinum lýkur og því sá hann þetta sem kjörið verkefni fyrir sig. Hann vonaðist til þess að geta lært af reynslunni með félaginu í þessi fimm ár sem hann samdi um en síðan hafa ef til vill einhverjar aðstæður breyst og hann hefur því fengið samningi sínum rift. Svona hlutir gerast í boltanum og þetta þarf því ekki að koma neitt sérstaklega á óvart," skrifar cole. Hinn 37 ára gamli Cole tilkynnti formlega að hann væri hættur þann 11. nóvember árið 2008 eftir langan og farsælan feril en hann státar af því að vera annar markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 187 mörk.
Enski boltinn Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf „Ég er farinn“ Íslenski boltinn England - Kongó | Enskir stefna á 16-liða úrslit Fótbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjá meira