Segir skattahækkanir ríkisstjórnarinnar stórhættulegar Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. desember 2009 17:05 Illugi Gunnarsson segir skattahækkanirnar stórhættulegar. Mynd/ E. Ól.
Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar við þær aðstæður sem nú eru í íslensku efnahagslífi eru stórhættulegar og allar líkur eru á því að þær bæði dýpki og lengi þá kreppu sem nú stendur yfir, segir Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að heimilin í landinu þoli ekki hærri skatta ofan á launalækkun, hærri afborganir á lánum og minni atvinnu. Í yfirlýsingu sem Illugi sendi frá sér í dag segir hann það rangt sem ríkisstjórnin hafi fullyrt og formenn þingflokka hennar fullyrtu í morgun að skattar muni lækka hjá þeim sem lægst hafa launin. „Afnám vísitölutengingar persónuafsláttar er ígildi skattahækkunar á almenning og þar með þeirra sem hafa lægstar tekjur. Þetta er augljóst, þar sem virði persónuafsláttar minnkar vegna verðbólgu og því fylgja skattleysismörk ekki verðlagsþróun," segir Illugi. Illugi bendir á að þessi staðreynd hafi verið fjárálaráðherra ljós árið 2003 miðað við grein hans í Morgunblaðinu þann 13. mars það ár. Illugi segir að skattbyrði láglaunafólks minnki ekki með því að afnema lögbundna hækkun persónuaflsáttar, með hækkun virðisaukaskatts eða með nýjum sköttum á eldsneyti, rafmagn og heit vatn og ýmsum öðrum skattahækkunum. „Hafi það verið markmið að hækka ekki skatta hjá láglaunafólki, þá hefur því markmiði augljóslega ekki verið náð," segir Illugi. Þá hafnar Illugi fullyrðingum um að framsetning á efni Sjálfstæðisflokksins um skattahækkanir sé villandi.
Tengdar fréttir Saka Sjálfstæðisflokkinn um blekkingar Þingflokksformenn Samfylkingarinnar og VG segja að Sjálfstæðisflokkurinn beiti vafasamri framsetningu í umfjöllun sinni um breytingar á skattkerfinu. 12. desember 2009 10:49 Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira
Saka Sjálfstæðisflokkinn um blekkingar Þingflokksformenn Samfylkingarinnar og VG segja að Sjálfstæðisflokkurinn beiti vafasamri framsetningu í umfjöllun sinni um breytingar á skattkerfinu. 12. desember 2009 10:49