Óvissa um safaríferð Hildar 12. desember 2009 05:00 Hildur Helga og sonur hennar, Óðinn Páll, vonuðust til að komast í safaríferðina til Kenía á laugardag þrátt fyrir veikindi. Mynd/Anton Brink „
Vinkona mín fann þessa ferð fyrir mig á netinu," segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður sem bókaði tveggja vikna safaríferð til Kenía um jólin ásamt syni sínum, Óðni Páli Ríkharðssyni, 15 ára. Áætluð brottför er í dag, en þegar blaðamaður náði tali af Hildi Helgu í gær ríkti óvissa um ferðina. „Ég er komin með svo hrikalega hálsbólgu og syni mínum var að slá niður svo við erum bæði á pensilíni. Ég veit ekki hvort þetta er svínaflensa, en þetta er allavega svínsleg pest. Ég ætla nú samt að klára að pakka," sagði hún. Aðspurð segir Hildur Helga að hana hafi lengi langað að fara í ævintýraferð með syni sínum. „Ferðin var bókuð í gegnum ferðaskrifstofuna Lastminute.com fyrir nokkrum dögum, undir einhverju sem heitir „last second". Þetta var ódýr ferð og bara heppni að fá hana, en aðalatriðið er að komast af landinu. Þetta eru fyrstu jólin án heimilishundsins Skottu sem dó fyrir hálfum mánuði, svo það ríkir mikil sorg á heimilinu," útskýrir hún. Þrátt fyrir langt flug segist Hildur Helga spennt fyrir ferðinni. „Mér skilst að meðalhitinn þarna sé 28 stig svo þetta verður mjög skrítið. Svo er flugið mjög langt, en það er farið frá Keflavík til Manchester, gist þar eina nótt og svo þaðan til Mombasa í Kenía sem tekur tólf tíma. Mér finnst bara gaman að fljúga en með öllum þessum öryggisreglum og sparnaði er enginn glamúr í flugi lengur," segir Hildur sem vonaðist til að komast í ferðina þrátt fyrir veikindin. „Við krossum bara fingur. Sem betur fer er ég með góðan og traustan leigjanda sem fer hvergi um jólin þannig að húsið verður ekki mannlaust ef við komumst." - ag
Mest lesið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira