Rekstrarniðurstaða Reykjavíkur betri en búist var við 16. júlí 2009 17:36 Ráðhús Reykjavíkur. Mynd/GVA
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar fyrir fjármagnsliði fyrstu þrjá mánuði ársins er 567 milljón krónum betri en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir samkvæmt tilkynningu frá borginni. Nær öll svið Reykjavíkurborgar eru rekin innan fjárheimilda á fyrstu mánuðum ársins og skatttekjur borgarinnar eru yfir áætlun. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til mars 2009 sem lagður var fram í borgarráði í dag. Þriggja mánaða uppgjörið staðfestir þar með það sem þegar hefur komið fram í mánaðarlegum rekstraryfirlitum sem kynnt hafa verið í borgarráði, að skatttekjur eru yfir áætlun og útgjöld undir áætlun. Rekstrarniðurstaða A-hluta að teknu tilliti til fjármagnsliða var 122 milljón krónum betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, en hún var neikvæð um 619 milljón krónur. Áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 741 mkr. Ástæður þessa má einkum rekja til áhrifa verðbólgu á fjármagnslið Eignasjóðs og A-hluta. A-hlutinn skiptist í Aðalsjóð og Eignasjóð. Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs fyrstu þrjá mánuði ársins var mun betri en áætlað var. Hins vegar var afkoma Eignasjóðs fyrir fjármagnsliði lakari en áætlun gerði ráð fyrir, einkum vegna minni tekna af sölu skipulagseigna en áætlað var eins og rakið er nánar hér á eftir. Í skýrslu Fjármálaskrifstofu með árshlutareikningnum kemur fram að handbært fé í lok tímabilsins var 8.157 mkr en áætlun gerði ráð fyrir 8.125 mkr. Eiginfjárhlutfall A-hluta er samkvæmt uppgjörinu enn sterkt eða 64% í samanburði við 66% samkvæmt ársreikningi 2008. Veltufjárhlutfall er sömuleiðis mjög gott eða 1,61. A-hluti Reykjavíkurborgar sýnir þannig áframhaldandi mikinn fjárhagslegan styrk og gott greiðsluhæfi enda þótt gengis- og verðlagsbreytingar hafi aukið greiðslubyrði.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Sjá meira