Lífið

Kling og Bang í New York

Táknmynd sýningar sjálfstæðra myndlistarsamtaka í New York þar sem Kling og Bang-liðar eru í góðum hópi.Mynd/X initiative. skrifar
Táknmynd sýningar sjálfstæðra myndlistarsamtaka í New York þar sem Kling og Bang-liðar eru í góðum hópi.
Táknmynd sýningar sjálfstæðra myndlistarsamtaka í New York þar sem Kling og Bang-liðar eru í góðum hópi. Mynd/X initiative.

Á þriðjudagskvöld hófst sýningarhald í New York á vegum samtaka sjálfstæðra gallería og samtaka sem starfa að list án hagnaðarávinnings. Sýningin nefnist No Soul for Sale. Meðal nær þrjátíu aðila á sýningunni eru fulltrúar Kling og Bang.

Sýningin er til húsa á 548 Vestur og 22. stræti, í Chelsea gallerí-hverfinu, á stað er kallast X Initiative, sem er stórt húsnæði er hýsti áður DIA Center. X Initative er einmitt rekið í dag af þekktum sýningarstjórum, galleríistum og listamönnum sem hafa valið á sýninguna staði sem þykja hafa skarað fram úr í hinum alþjóðlega listheimi. Húsið var tekið yfir en það er í niðurníðslu og er ætlunin að X-frumkvæði verði þar í ár.

Kling & Bang gallerí í Reykjavík var valið til að taka þátt og kynnir þarna um fjörutíu íslenska listamenn en aðrir þátttakendurnir á þessari sýningu koma hvaðanæva að úr heiminum. Reykjavík og íslenskir listamenn lenda þarna á korti með helstu listastöðum, svo sem Hong Kong, Shanghai, París, Berlín, Mílanó, New York og fleirum.

Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarmaður var á opnuninni og var ánægð með áhuga og aðsókn; sýningin væri mikil kynning á þeim hópi myndlistarmanna sem á sínum tíma kom saman í kringum lítið gallerí á Laugaveginum og nú sýnir á Hverfisgötu. Fram undan er sýningahald í nafni Kling og Bang í Hannover í Þýskalandi, auk smærri sýninga einstakra listamanna. Hefur sýningarinnar verið að góðu getið í fjölmiðlum í New York og er hlutur Klingara talinn með því betra sem þar er í boði. Sýningin stendur til 28. júní og er opið frá klukkan 13-21 alla daga og frítt inn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.