Innlent

Hichem fluttur á sjúkrahús

Hælisleitandinn Mansri Hichem, sem verið hefur í hungurverkfalli í rúmlega tuttugu sólarhringa á gistiheimili í Njarðvík, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík og dvelur þar enn. Þar fær hann vökva í æð, en ætlar að halda verkfallinu áfram. Honum hefur hrakað síðustu sólarhringana og þegar hann fékk mikinn verk fyrir hjartað í gærkvöldi kölluðu félagar hans á gistiheimilinu eftir aðstoð. Verið er að fara yfir mál hans í Útlendingastofnun og dómsmálaráðuneytinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×