Góðhjartaðir Eyjapeyjar 12. september 2009 04:15 Góðhjartaðir vinir Lúkas og Jóel söfnuðu fé til styrktar Göngum saman með því að leika tónlist fyrir utan verslanir í Vestmannaeyjum. mynd/óskar pétur friðriksson „
Þetta var svo óeigingjarnt og fallega gert að maður fékk nánast tár í augun. Maður hefði haldið að peyjar sem þessir mundu heldur vilja eyða peningunum sínum í eitthvað annað,“ segir Ólöf Jóhannsdóttir, meðlimur Göngum saman-samtakanna um peningagjöf frá Lúkasi Jarlssyni og Jóel Þóri Ómarssyni, tólf ára drengjum í Vestmannaeyjum. Samtökin Göngum saman safnar fé til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Lúkas og Jarl færðu samtökunum peningagjöf að upphæð 30.000 krónur sem þeir höfðu safnað í um ár með því að leika tónlist fyrir fólk og gangandi. Faðir Lúkasar, Jarl Sigurgeirsson, segir hugmyndina hafa alfarið verið drengjanna og er að eigin sögn mjög stoltur af syninum. „Þeir ætluðu svo sem ekkert að fara að safna pening heldur vildu bara skapa smá jólastemningu síðustu jól. Þegar fólk fór svo að gefa þeim pening þá datt þeim í hug að það væri sniðugt að styrkja gott málefni. Þeir gripu svo tækifærið þegar Göngum saman-gangan fór fram hérna í Eyjum um síðustu helgi. Það sem mér þótti svo gaman var að það var enginn að halda þessu að þeim, þeim datt þetta algjörlega í hug sjálfum,“ segir Jarl. Vinirnir, sem báðir leika á saxófón með skólalúðrasveit Vestmannaeyja, segjast vel geta hugsað sér að endurtaka leikinn fyrir næstu jól. „Þetta var mjög gaman, skemmtilegast var samt að gefa peningana til Göngum saman. Mér sýndist líka fólk hafa gaman af tónlistinni,“ segir Lúkas Jarlsson. Báðir drengirnir hyggjast halda áfram tónlistarnáminu í framtíðinni. „Okkur langar líka báðum að verða kokkar þegar við verðum stórir. Kannski opnum við saman veitingastað þar sem annar okkar spilar fyrir gestina á meðan hinn eldar,“ segja þeir Lúkas og Jóel að lokum. - sm
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira