Samfylkingarfólk gagnrýnir Guðlaug 9. janúar 2009 09:23 Gunnar Axel Axelsson er formaður Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði.
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði mótmælir harðlega tillögum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um niðurlagningu St. Jósefsspítala og flutning á starfsemi hans, sem stjórnin segir að hafi verið lagðar fram án samráðs við hluteigandi starfsfólk og bæjaryfirvöld. Breytingin falli vel að hugmyndum ráðherrans um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Engar trúverðugar skýringar Að mati stjórnarinnar felast engar trúverðugar skýringar í tillögum Guðlaugs á því hver tilgangur breytinganna sé og með hvaða hætti þær eigi að þjóna betur hagsmunum þeirra sem þurfa á þjónustu spítalans að halda eða hvernig bæta eigi upp þau verðmætu störf sem flytjast í burtu með niðurlagningu spítalans. Fellur að hugmyndum Guðlaugs um einkavæðingu „Svo virðist sem megintilgangur breytinganna felist í því að þvinga núverandi starfsfólk til þátttöku í einkarekstri sem ákveðið hefur verið að skuli verða staðsettur í Reykjanesbæ og fellur vel að hugmyndum ráðherrans um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Slíkan gjörning getur Samfylkingin í Hafnarfirði ekki stutt, enda í algjörri andstöðu við þær hugmyndir sem flokkurinn hefur lagt fram um gagnsæa og vandaða stjórnsýslu, þar sem almannahagsmunir eru settir ofar þröngum eiginhagsmunum einstakra stjórnmálaflokka eða fjármagnseigenda,“ segir í ályktun stjórnar Samfylkingarfélagsins. Stangast á við grunngildi Samfylkingarinnar Þar segir einnig að hugmyndir ráðherrans samræmist á engan hátt þeim grunngildum sem Samfylkingin byggi tilvist sína á né stefnu Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum. „...sem meðal annars kveður á um „að tryggja skuli aðgang allra að heilbrigðiskerfinu, óháð efnahag.“ Erfitt er að sjá hvernig umræddar tillögur auk nýlegra ákvarðana um álagningu komugjalda á þá sem þurfa á því að halda að leggjast inn á sjúkrahús, geti með einhverju móti samræmst þeirri stefnu.“
Mest lesið Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Vongóð um stuðning Miðflokksins Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Innlent Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Erlent Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Innlent Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Erlent Borgin beri ábyrgð sem eigandi Innlent Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Innlent Ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex ára stúlku Innlent Fleiri fréttir Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Borgin beri ábyrgð sem eigandi Grænlendingar hnykla vöðvana og altjón í Gufunesi Mál látins manns komið til ákærusviðs Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Fjárlögin komi í veg fyrir fjölgun nemenda Upplýsingakerfi liggur niðri og ekki hægt að hafa eftirlit Veittu ökumanni eftirför sem endaði á ljósastaur Neitar að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á Pétur Ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex ára stúlku Brugðið vegna ummæla lögreglumanns um Frú Ragnheiði Höfðu fengið ábendingu um fjölda íbúa í Brúnastekk Gæsluvarðhald Grikkjans framlengt Bein útsending: Málþing um aðlögun að loftslagsbreytingum „Vorum bara með húsið í því ástandi sem það var“ Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Umdeild mál á dagskrá og þeim fjölgar Dómur MDE staðfesti að réttarkerfið standi ekki með brotaþolum Engin fleiri mislingatilfelli greinst Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Forsætisnefnd tekur við kvörtunum um ríkisendurskoðanda Ríkið brotlegt í einu máli en sýknað í öðru Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Bein útsending: Fundur um fyrirhugaða atvinnustefnu Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Vöktuðu rústirnar fram á nótt og fylgjast áfram með Líkamsárás og vinnuslys Sjá meira