Vill að Árni segi af sér 9. janúar 2009 11:42 Árni Mathiesen, fjármálaráðherra.
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur ítrekað gerst sekur um umdeild vinnubrögð auk þess sem margir hafa efast um getu hans og þekkingu til að stýra efnahagslífi landsins í skjóli menntunar í dýralækningum, að mati Þórðar Heiðars Þórarinssonar aðstoðarritstjóra Deiglunnar. Hann segir að réttast væri að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, krefðist afsagnar Árna en þar sem ekki virðist ætla að leiða til þess þurfi Árni að taka af skarið sjálfur og segja af sér. Deiglan er vefrit ungra hægrimanna í Sjálfstæðisflokknum og eru forsvarsmenn þess nátengdir forystu flokksins. Andri Óttarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Borgar Þór Einarsson fyrrum formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og fóstursonur Geirs, Helga Lára Haarde dóttir Geirs og Þórlindur Kjartansson formaður SUS eru meðal þeirra sem ritstýrt hafa vefritinu sem var stofnað í 1998. Árni munnhöggvast við umboðsmann Alþingis Þórður segir að Árni hafi í fyrra gerst sekur um að munnhöggvast við umboðsmann Alþingis vegna embættisfærslna sem umboðsmaður gerði athugasemdir við. ,,Árni var ekki sammála og reifst opinberlega við umboðsmann, eina lögskipaða eftirlifsmann stjórnsýslunnar á landinu." Undir lok síðasta árs hafi umboðsmaður fellt annan dóm um fjármálaráðherra þegar hann gagnrýndi harðlega ráðningu Árna á Þorsteini Davíðssyni sem héraðsdómara. ,,Í kjölfarið lýsti Sigurður Líndal fyrrum lagaprófessor þeim dómi á áliti umboðsmanns að Árni hefði brotið það harkalega af sér að í nánast öllum öðrum tilvikum, þ.e. alls staðar annars staðar í stjórnsýslunni, hefði brotið sjálfkrafa leitt af sér uppsögn á starfssamningi. Árni virðist hins vegar þverrast við og sér enga ástæðu til uppsagnar, ekki frekar en aðrir embættismenn sjái ástæðu til að axla ábyrgð." Árni sekur dýpra í fenið Þórður segir að Árni sjái ekki eigin axarsköft og sökkvi dýpra í fenið ,,...þar til nefið fyllist af skít sem hann hefur mokað undir sig sjálfur." ,,Réttast væri að forsætisráðherra krefðist afsagnar ráðherra (og fleiri ef því er að skipta) en þar sem ekki virðist ætla að leiða til þess þá þarf Árni að taka af skarið sjálfur. Árni, þú verður maður að meiri á eftir og vonandi fylgja svo fleiri í kjölfarið," segir Þórður að lokum. Grein Þórðar, Augun full af ryki og nefið af skít!, er hægt að lesa hér.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Sjá meira