Latibær býður upp á tónleika 21. ágúst 2009 05:15 Í fyrra voru um 5.000 hlauparar í Latabæjarhlaupinu og um 12.000 manns á svæðinu, en Gunnar Helgason býst við um 15.000 manns á morgun. „
Í fyrra voru um 5.000 hlauparar og um 12.000 manns á svæðinu, en við búumst við heldur fleirum í ár," segir Gunnar Helgason, leikari og umsjónarmaður skemmtidagskrár, um Latabæjarhlaupið. Hlaupið fer fram í fjórða sinn á morgun klukkan 13, en upphitun hefst í Hljómskálagarðinum um 20 mínútum fyrr. „Núna ætlar Magnús Scheving að vera með sérstaka upphitun fyrir alla krakkana, sem um 15.000 manns munu líklega taka þátt í. Krakkarnir fara svo í sitt rásmark og er skipt í þrjá aldurshópa með litum. Maggi hleypur svo fyrstu metrana með hverjum hóp, en Sniglarnir ætla að vera fremstir og leiða hlauparana rétta leið," útskýrir Gunnar og segir meiri stemningu í kringum hlaupið sjálft í ár en áður. „Eftir hlaupið verða svo Latabæjartónleikar í Hljómskálagarðinum, á sama sviði og Rásar 2 tónleikarnir verða um kvöldið og það verður risaskjár á staðnum svo allir eiga að geta séð hvað fer fram. Solla stirða ætlar að bjóða vinum sínum að koma og syngja Latabæjarlög ásamt sínum eigin lögum, en fram koma Jónsi, sem syngur upphafslagið í þáttunum, Jóhanna Guðrún, Magni Ásgeirsson og Ingó Veðurguð," segir hann. „Í ár ætlum við að reyna að stytta tímann sem fólk þarf að vera á staðnum, en í heildina verður þetta um eins og hálfs tíma dagskrá með upphitun, hlaupinu og skemmti-atriðum," bætir hann við. - ag
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fleiri fréttir Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Sjá meira