Innlent

Aðalmeðferð í máli ofbeldisfulls föður

Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Aðalmeðferð fór fram í máli þriggja barna föður á höfuðborgarsvæðinu sem sakaður hefur verið um hrottalegt ofbeldi gagnvart þremur börnum sínum. Mál mannsins komst í hámæli síðastliðið haust þegar að fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis sagði frá máli mannsins en hann hefur meðal annars verið sakaður um að nota eitt barna sinna sem hnífaskotskífu. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa hefur farnast börnunum vel en þau hafa verið í umsjá ömmu sinnar og afa frá því að barnaverndaryfirvöld fengu málið í sínar hendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×