Ríkisskattstjóri rannsakar fleiri greiðslukort 11. janúar 2009 18:39
Þrjátíu erlend greiðslukort hafa bæst við í rannsókn Ríkisskattstjóra á notkun kortanna hér á landi eftir að tímabil rannsóknarinnar var lengt. Alls eru því 60 erlend greiðslukort til skoðunar. Íslenskir eigendur kortanna notuðu erlendu kortin hér á landi og gátu þannig komist hjá því að greiða skatt af tekjum sínum. Ríkisskattstjóri fékk heimild síðasta haust til að nálgast upplýsingar um hreyfingar á greiðslukortum sem gefin eru út erlendis og skuldfærð þar en notuð til úttektar á Íslandi svo fremi sem heildarúttekt hvers korts á hverju tímabili næmi að minnsta kosti fimm milljónum króna. Rannsóknin hefur verið umfangsmikil en eigendum verslana hefur borist bréf frá Ríkisskattstjóra þar sem upplýsinga er krafist um hvaða einstaklingar voru á bak við greiðslukort sem hafa verið notuð í viðskiptum. Fyrirtæki hafa einnig verið heimsótt í sama tilgangi. Í upphafi miðaðist tímabilið sem var til skoðunar við júlí 2006 til júní 2007. Tímabilið var síðar lengt til júní á síðasta ári. Heimildir fréttastofu herma að við lengingu tímabilsins hafi komið fram nýir notendur. 30 ný greiðslukort hafi bæst við þau 30 sem nú þegar voru til rannsóknar. Fram hefur komið að Ríkisskattstjóri hefur nafngreint nær alla eigendur kortanna en eftir að fjöldi korta tvöfaldaðist lengdist rannsóknin. Enn er verið að skoða gögn frá kortafyrirtækjum og á enn eftir að nafngreina hluta af eigendum kortanna. Um leið og því er lokið verður viðkomandi einstaklingum sent bréf frá Ríkisskattstjóra þar sem óskað er eftir því að þeir geri grein fyrir erlendum tekjum og eignum. Geti þeir það ekki verður mál þeirra sent til skattrannsóknarstjóra. Heimildir fréttastofu herma að bréfin verði send út síðar í mánuðinum.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Fleiri fréttir Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Sjá meira