Wenger missti stjórn á skapinu vegna spurningar um HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2009 11:45 Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Nordic Photos / AFP
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, missti algjörlega stjórn á skapi sínu þegar hann var spurður um möguleika Theo Walcott að komast á HM í Suður-Afríku í sumar. Arsenal tapaði óvænt fyrir Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina en margir leikmenn voru fjarverandi vegna meiðsla. Þeirra á meðal Robin van Persie sem meiddist í vináttulandsleik með Hollandi fyrr í mánuðinum. Theo Walcott, leikmaður Arsenal, hefur átt við þrálát meiðsli að stríða en kom inn á sem varamaður í leiknum um helgina. Það var hans þriðji leikur síðan að tímabilið hófst í Englandi. Wenger var spurður hvort að Walcott þyrfti að ná sér algjörlega góðum af meiðslum sínum til að eiga möguleika á að komast á HM með enska landsliðinu. Þá missti Wenger stjórn á skapinu sem gerist víst ekki oft. „Fjandinn hafi það - HM er í júní. Er hann nokkuð í fríi til 9. júní? Þú hlýtur að vera að grínast," sagði Wenger. „Hann er á launum hjá Arsenal fyrir að spila í hverri viku. Og hann fær vel borgað. Af hverju ætti ég að hafa áhyggjur af því hvað gerist á HM? Af hverju í ósköpunum ætti mér ekki að standa á sama? Hann veit ekki einu sinni hvort hann verður með á HM." „Þetta snýst um að hann standi sig vel með Arsenal. Það er Arsenal sem borgar launin hans - ekki heimsmeistarakeppnin. Hann verður meira að segja á launum hjá Arsenal á meðan heimsmeistarakeppninni stendur." Arsenal mætir Standard Liege í Meistaradeild Evrópu í kvöld og getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar með jafntefli.
Mest lesið Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sjá meira