„2007“ kom aldrei til heilbrigðisstarfsmanna 29. september 2009 18:36 Mynd úr safni
Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á heilbrigðisþjónustu landsmanna. Niðurskurður á fjárveitingum til sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu skerðir þjónustu við alla sem þurfa á henni að halda. Niðurskurðurinn veldur stórauknu álagi á starfsfólk, með tilheyrandi eftirmálum; óbætanlegu heilsutjóni, kvíða og óöryggi. Er ekki mál að linni? Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Sjúkraliðafélags Íslands. Þá segir ennfremur að „2007" hafi aldrei komið til starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar. Til þeirra hafi árum saman verið krafa um aðhald, sparnað og niðurskurð sem orðið hafi við af fremsta megni. Afleiðingar niðurskurðar undangenginna ára komi fram í skertri þjónustu við sjúklinga og stórauknu álagi á heimilin. „Heilbrigðisþjónusta á vegum sveitarfélaganna stendur ekki lengur undir þeim kröfum sem til hennar eru gerðar vegna sparnaðar og óviðunandi starfsaðstöðu sem kemur fyrst og síðast niður á þeim sem hennar eiga að njóta. Gott heilbrigðiskerfi byggir á störfum velmenntaðs starfsfólks, góðum starfsanda og sameiginlegum metnaði til að gera góða þjónustu betri. Gott heilbrigðiskerfi er annað og meira en umbúðir. Gott heilbrigðiskerfi byggist upp á löngum tíma, það er því mjög alvarlegt þegar slíkri uppbyggingu er stefnt í voða til langs tíma vegna tímabundinna erfiðleika þjóðarinnar Sjúkraliðar skora á heilbrigðisráðherra að gera allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir frekari niðurskurð heilbrigðisþjónustunnar. Sjúkraliðar benda á, að til þess að ná fram frekari sparnaði án skerðingar á þjónustu verði að gæta þess að „rétt fólk sé á réttum stað,, menntun heilbrigðisstarfsmanna og hæfni sé nýtt. Félagið leggur áherslu á að breytingar verði aðeins framkvæmdar á grundvelli hlutlægs mats valdra einstaklinga sem hafnir eru yfir allan grun um hagsmunagæslu fyrir einstaka hópa eða stéttir. Félagið varar ráðherra við að handahófskenndur niðurskurður getur snúist upp í andhverfu sína með stórauknum kostnaði fyrir samfélagið," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira