Óðmenn í Þýskalandi 8. desember 2009 05:45 Við Tjarnarbíó 1970. Óðmenn spiluðu þar í poppleiknum Óla og mikið af því efni endaði á tvöföldu plötunni sem nú er komin út í Þýskalandi.
Tvöfalda plata Óðmanna frá 1970 hefur verið endurútgefin á CD og 180 gramma vínylplötum af þýska endurútgáfufyrirtækinu Shadoks Music. Fyrirtækið sérhæfir sig í að bjarga menningarverðmætum frá glötun og koma þeim til áhugasamra hlustenda. Aðallega verða fyrir valinu lítt þekktar en góðar plötur frá 7. og 8. áratugnum. „Það er mjög gott að skipta við Þjóðverja. Þeir eru mjög góðir í viðskiptum og það er búið að leggja inn á reikninginn minn fyrir minn hluta,“ segir Jóhann G. Jóhannsson, kampakátur með framtakið. Hverju þakkar hann þessa lífseiglu Óðmanna? „Þetta er bara góð músík. Í safnarablöðum – er mér sagt, ég er ekki safnari – þykir þetta ein merkilegasta plata þessarar tegundar á Norðurlöndum. Það er gaman að fá svoleiðis hrós,“ segir Jóhann og bætir við: „Þó að hún hafi ekki komist á listann yfir 100 bestu íslensku plöturnar. Það er náttúrlega þannig að þegar músíkin heyrist aldrei rofna tengslin við fólk í dag. Það eru helst einhverjir ungir framúrstefnurokkarar sem grafa þetta upp og kveikja á þessu.“ Óðmanna-platan er sú fyrsta íslenska sem Shadoks Music gefur út en útgáfan lætur ekki staðar numið þar því fram undan er sambærileg útgáfa á þremur plötum með Trúbroti og plötunni What’s Hidden There? með Svanfríði. - drg
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira