Vel heppnað í veðurblíðu 8. desember 2009 06:00 Karlakórinn Fjallabræður við Reykjavíkurtjörn í gær þar sem hann söng Bítlalagið All You Need Is Love.fréttablaðið/gva
Karlakórinn Fjallabræður söng við Reykjavíkurtjörn í gær Bítlalagið All You Need Is Love ásamt þátttakendum frá 157 öðrum þjóðum. Lagið var sungið samtímis við undirspil útsetjarans og kvikmyndatónskáldsins Graeme Revell sem hefur samið tónlist fyrir kvikmyndirnar Sin City og The Saint auk sjónvarpsþáttarins CSI Miami. „Þetta gekk alveg stórkostlega. Það flugu þyrlur og álftir yfir hausinn á okkur og þetta var ferlega skemmtilegt,“ segir kórstjórinn Halldór Gunnar Pálsson. „Það var góð tilfinning að vita af einhvern veginn öllum heiminum að gera það sama og þú.“ Fiðluleikari Fjallabræðra, Unnur Birna Björnsdóttir, var aðalsöngvarinn í laginu á meðan Fjallabræðurnir sáu um að radda. „Hún hefur einu sinni sungið áður fyrir okkur. Sú hugmynd var bara tekin í gær (sunnudag). Ég hringdi í hana og spurði hvort hún væri ekki til í að syngja fyrir allan heiminn. Hún bara sló til og lét vaða, skellti sér í lopakjól og græjaði þetta.“ Hjörtur Grétarsson hjá framleiðslufyrirtækinu True North, sá um að tæknilega hliðin yrði í lagi við Reykjavíkurtjörnina. „Þetta gekk alveg vonum framar. Veðrið lék við okkur. Þeir æfðu nokkrum sinnum og svo keyrðum við á þetta á réttum tíma,“ segir Hjörtur. „Ég hef ekki heyrt annað en að þetta hafi tekist mjög vel í öllum löndunum. Kollegar okkar í London sem heita Gorgeous héldu utan um þetta.“ Allur ágóði af verkefninu, sem samtökin (RED) Love standa fyrir, rennur til baráttu AIDS í Afríku. Söngurinn frá öllum þátttökuþjóðunum verður klipptur saman í eitt myndband af hinum virta auglýsingaleikstjóra Chris Palmer en áhugasömum er bent á að hægt verður að skoða útkomuna á síðunni Starbucksloveproject.com. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira