Kvikmyndagerð slátrað 3. október 2009 06:00 Ari Kristinsson, Baltasar Kormákur og Ragnar Bragason eru æfir yfir þeim niðurskurði sem Kvikmyndamiðstöð Íslands þarf að taka á sig ef fjárlagafrumvarp Steingríms J. Sigfússonar nær fram að ganga. Boðaður er ríflega þrjátíu prósenta niðurskurður, sem kvikmyndagerðarmennirnir telja að muni slátra íslenskri kvikmyndagerð.
Íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru æfir yfir þeim niðurskurði sem boðaður er á framlögum ríkisins til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Slátrun, segir Ari Kristinsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Í fjárlagafrumvarpi Steingríms J. Sigfússonar kemur fram að framlög til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands verði skorin niður um 206 milljónir, sem samsvarar þrjátíu prósenta niðurskurði. Þeir kvikmyndagerðarmenn sem Fréttablaðið ræddi við í gær segja þennan niðurskurð í engu samræmi við neitt. Aðrar listgreinar séu ekki látnar þola slíka slátrun. Ragnar Bragason leikstjóri veltir því fyrir sér hvort fjárlaganefndin hafi ekki kynnt sér þær gjaldeyristekjur og þá landkynningu sem íslenskum kvikmyndum hafi svo oft verið hrósað fyrir. „Það hefur verið sýnt fram á það að við hverja krónu sem ríkið leggur til kvikmyndagerðar skapist tólf til fimmtán krónur,“ segir Ragnar, sem er þrátt fyrir allt bjartsýnn á að frumvarpið verði ekki samþykkt með þessum niðurskurði. „Ég bara trúi því ekki, þetta hlýtur að verða endurskoðað.“ Baltasar Kormákur segist ekki eiga orð yfir þessum niðurskurðartillögum. „Þetta er úr samhengi við allt, það er verið að leggja íslenska kvikmyndagerð í rúst. Menn virðast ekki gera sér grein fyrir menningarlegu framlagi íslenskrar kvikmyndagerðar; þarna eru yfirleitt ný íslensk handrit, ný íslensk tónlist. Það er bara verið að taka eina atvinnugrein og fórna henni á altari Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“ „Þetta er eins og blaut tuska í andlitið og mér þykir þessi niðurskurður alveg ofsalega skrýtinn. Það er engin sem þarf að þola jafnmikinn niðurskurð hlutfallslega,“ segir Ari Kristinsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Hann er ómyrkur í máli og telur að niðurskurður af þessu tagi eigi hreinlega eftir að leggja íslenska kvikmyndagerð í rúst. „Kvikmyndir eru fjármagnaðar með vilyrðum fram í tímann og við vitum ekki hvort þessi niðurskurður muni bitna á þeim sem hafa verið að safna peningum erlendis fyrir næstu verkefni.“ Katrín Jakobsdóttir, mennta-og menningamálaráðherra, segir að vissulega sé þetta mikill niðurskurður og hún býst fastlega við því að miklar umræður verði um þennan lið fjárlagafrumvarpsins í ljósi þess. „En auðvitað verður líka að horfa til þess að þetta er erfitt fjárlagafrumvarp og það er allt undir,“ segir Katrín, sem segist skilja vel áhyggjur kvikmyndagerðarmanna af stöðu mála. Hún tekur skýrt fram að þarna sé ekki verið að horfa til listgreinarinnar sem slíkrar og reiknar með að menn muni horfa til þess að íslensk kvikmyndagerð taki ekki bara við peningum heldur skili hún líka tekjum aftur í ríkiskassann. „Ég skil vel að mönnum lítist ekkert á blikuna, ég á fund með nokkrum kvikmyndagerðarmönnum í næstu viku og eins og ég sagði reikna ég fastlega með því að þetta verði tekið til umræðu inni á þingi.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Sjá meira