Stendur ekki til að umbylta rekstri Strætós 7. nóvember 2009 14:00 Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er stjórnarformaður Strætós bs. Mynd/Anton Brink
Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætós bs, segir að ekki standi til að ráðast í róttækar breytingar á rekstri byggðarsamlagsins. Hún segir ýmislegt jákvætt í nýlegum tillögum sem ráðgjafarfyrirtæki vann að beiðni stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að samkvæmt tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM verði rekstur á öllum strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu boðin út til einkaaðila. Inntakið í tillögum fyrirtækisins er að Strætó verði eins konar sérfræðistofnun sem skipuleggi og tryggi almenningssamgöngur og annist síðan útboð á sjálfum rekstri vagnanna. Þetta myndi meðal annars þýða uppsagnir vagnstjóra og sölu á strætisvögnunum. Jórunn bendir á að um tillögur sé að ræða. Ekki hafi verið tekin nein ákvörðun og ekki standi til að umbylta rekstri Strætós. Engin áform séu um að skerða þjónustuna eða segja starfsfólki upp. Þá segir Jórunn að í tillögunum komi fram skýr vilji sveitarfélaganna sem standa að rekstri Strætós til að halda samstarfinu áfram. Rekstur byggðarsamlagsins hefur gengið vel á þessu ári, að sögn Jórunnar. Fyrirtækið hafi skilað afgangi í fyrsta sinn í langan tíma og tekist hafi að greiða ákveðið lán. Aftur á móti segir Jórunn að ekki megi mikið út af bregða og að stjórnendur Strætós taki mið af efnahagsástandinu í áætlunum sínum. Til að mynda sé ekki gert ráð fyrir að kaupa nýja strætisvagna á næsta ári.
Tengdar fréttir Strætó bjóði út allan rekstur strætisvagna Rekstur á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðinn út til einkaaðila, verði farið að tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM, sem skilað hefur skýrslu til stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Mikill hallarekstur hefur verið á rekstri byggðarsamlagsins Strætó bs. Sveitarfélögin sem eiga Strætó leggja nú afar mikla áherslu á að þau þurfi ekki að bera neinar viðbótar byrðar vegna strætisvagnarekstursins. Meðal annars hefur verið brugðist við því með ákvörðun um að Strætó kaupi enga nýja vagna á næsta ári. 7. nóvember 2009 02:00 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Strætó bjóði út allan rekstur strætisvagna Rekstur á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðinn út til einkaaðila, verði farið að tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM, sem skilað hefur skýrslu til stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Mikill hallarekstur hefur verið á rekstri byggðarsamlagsins Strætó bs. Sveitarfélögin sem eiga Strætó leggja nú afar mikla áherslu á að þau þurfi ekki að bera neinar viðbótar byrðar vegna strætisvagnarekstursins. Meðal annars hefur verið brugðist við því með ákvörðun um að Strætó kaupi enga nýja vagna á næsta ári. 7. nóvember 2009 02:00