Innlent

Smuga á umferðarlögunum

Breki Logason skrifar
Sveinn Andri Sveinsson
Sveinn Andri Sveinsson

Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms Vesturlands yfir karlmanni sem ákærður var fyrir brot á umferðarlögum. Maðurinn var ákærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fyrir dómi sagðist hann hinsvegar hafa verið í bíl kvöldið áður en hann var stöðvaður þar sem hópur fólks reykti kannabisefni. Hann hafi ekki vitað að slíkt myndi leiða til þess að leifar af kannabis gætu mælst í þvagi hans daginn eftir. Sveinn Andri Sveinsson verjandi mannsins segir dóminn sérstakan en hann sé þó staðfesting á niðurstöðu héraðsdóms. Segja má að búið sé að finna smugu á umferðarlögunum.

Þrír svipaðir dómar hafa gengið í héraðsdómi Vesturlands að undanförnu og ákvað ákæruvaldið að áfrýja einum þeirra. Sveinn Andri segir að umferðlögin séu mjög ströng eftir að ákvæði númer 45 a gekk í gildi.

„Það ákvæði segir að nóg sé að leifar af fíkniefnum greinist í þvagi ökumanns til þess að hann verði sviptur ökuleyfi strax til þriggja mánaða, þó svo það liggi fyrir vottorð frá Háskólanum um að viðkomandi hafi ekki verið undir áhrifum," segir Sveinn Andri.

Hann segir Hæstarétt hinsvegar hafa staðfest í dag að það beri ekki að túlka þetta lagaákvæði samkvæmt orðanna hljóðan.

„Í þessum dómi ásamt tveimur öðrum báru ökumenn því við að þeir hafi verið innan um menn sem voru að reykja og því sé um óbeinar reykingar að ræða. Það sem er athyglisvert er að þarna telur Hæstiréttur, þvert ofan á álit ákæruvaldsins, að það sé ekki saknæmt að keyra bíl eftir að hafa veirð innan um menn sem hafa verið að reykja. Það geti ekki verið hluti af almennri þekkingu borgaranna að átta sig á því að það sé möguleiki," segir Sveinn Andri.

Það má því segja að þarna séu menn búnir að finna smugu á umferðarlögum í landinu.










Tengdar fréttir

Ökumaður í reykfylltum kannabisbíl sýknaður

Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms yfir karlmanni sem hafði verið ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákæruvaldið taldi manninn hafa sýnt af sér saknæma og refsiverða háttsemi er hann ók bifreið í umrætt skipti eftir að hafa neytt fíkniefna með óbeinum reykingum nóttina fyrir hið meinta brot. Þá sat hann í lokaðri bifreið í allt að hálfa klukkustund á meðan aðrir, sem voru í bifreiðinni, neyttu þar kannabisefnis með reykingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×