Innlent

Stjórnarþingmaður vill lægri vexti á AGS-lánið

Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG. Mynd/Pjétur
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur brýnt að stjórnvöld ræði við sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lægri vexti á láni sjóðsins til íslenska ríkisins. Hún sagði í umræðum Alþingi í dag að að vextirnir væru breytilegir og í dag væru þeir hærri en gengur og gerist á fjármálamörkuðum.

„Það þýðir að ríkið er að greiða rúmar fimm milljónir króna á dag með fyrstu greiðslunni sem við fengum í nóvember. En greiðslan er geymd á reikning í Bandaríkjunum á umtalsvert lægri vöxtum," sagði Lilja sem fagnaði komu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til landsins.

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, beindi fyrirspurn til Helga Hjörvar, formanns efnahags- og skattanefndar, en hún vildi vita um ástæður þess að sendinefndin komi til landsins.

Helgi sagði að koma sendinefndarinnar ætti ekki að koma á óvart og að hún kæmi í framhaldi á fyrri heimsókn sjóðsins til landsins á árinu. Óþarfi væri að gera málið tortryggilegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×