Innlent

Gátu oftast keypt tóbak

Frá Hafnarfirði
Frá Hafnarfirði Mynd/GVA

Tveir fimmtán ára unglingar gátu keypt tóbak hjá tólf sölustöðum af tuttugu, eða í sextíu prósentum tilfella, í könnun sem forvarnanefnd Hafnarfjarðar stóð fyrir fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forvarnanefndinni.

Unglingarnir fóru, í fylgd með starfsmönnum Gamla bókasafnsins, á alla sölustaði tóbaks í Hafnarfirði utan vínveitingastaða. Forvarnanefndin harmar niðurstöðu rannsóknarinnar og hvetur söluaðila tóbaks í Hafnarfirði til að virða lög.

Búast má við að þeir staðir sem selja börnum tóbak fái áminningu eða verði sviptir tóbakssöluleyfi.- kg










Fleiri fréttir

Sjá meira


×