Vernd uppljóstrara og nektardans bíður 25. apríl 2009 06:30 Umræður um stjórnarskrármálið tóku tímann sinn. Tíma sem eflaust hefði verið hægt að nýta til að ljúka öðrum brýnum málum.Fréttablaðið / gva Mynd/GVA
Fjórtán lagafrumvörp voru afgreidd frá Alþingi á þremur síðustu dögum þingsins. Nokkur mál sem þóttu brýn fengu hins vegar ekki afgreiðslu og eru ýmist farin út af borðinu í bili eða bíða þess að vera lögð fram aftur á næsta þingi. Fyrst ber að nefna frumvarpið um breytingar á stjórnarskránni, sem Sjálfstæðisflokknum tókst að koma í veg fyrir með málþófi. Stjórnarskrárbreytingar þurfa samþykki tveggja kjörinna þinga og því má ekki búast við öðru slíku frumvarpi fyrr en þegar líða tekur að næstu kosningum. Önnur mál hafa fallið í skuggann af stjórnarskrármálinu. Meðal þeirra er frumvarp fjármálaráðherra um endurskipulagningu þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja, eða svokallað eignaumsýslufélag ríkisins. Félaginu var ætlað að taka yfir rekstur fyrirtækja á barmi gjaldþrots sem þjóðin má ekki án vera og endurskipuleggja þau. Stjórnarliðar álitu frumvarpið eitt það mikilvægasta sem fyrir þinginu lá. Frumvarpið mætti hins vegar andstöðu meirihluta sjálfstæðis- og framsóknarmanna sem tókst að stöðva framgang þess að sinni. Frumvarp viðskiptaráðherra um ýmsar breytingar á lögum um fjármálamarkaðinn varð ekki heldur að lögum. Í breytingartillögunum fólst að Fjármálaeftirlitið og ákæruvald mættu falla frá hugsanlegri refsingu gegn þeim sem fyrstir upplýsa um afbrot tengd bankahruninu. Uppljóstrarar njóta því engrar slíkrar verndar enn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins lögðust allir umsagnaraðilar þvert gegn frumvarpinu í þáverandi mynd, töldu á því mikil vanhöld og að það byði ýmissi hættu heim. Ekki væri tækt að ákvörðunarvald um niðurfellingu sektar eða ákæru lægi eingöngu hjá þessum stofnunum. Þverpólitísk sátt varð um að setja málið í salt. Ekki er útilokað að endurunnið frumvarp líti dagsins ljós á næsta þingi. Og fleiri mál mætti nefna: Frumvarp Lúðvíks Bergvinssonar um persónukjör dagaði uppi í allsherjarnefnd vegna ágreinings. Bann við kaupum á vændi var lögfest á síðasta degi þings en annað áhersluatriði úr mansalsáætlun félagsmálaráðherra, blátt bann við nektardansi, ekki. Frumvarp Sivjar Friðleifsdóttur þess efnis var ekki afgreitt. Sjálfstæðismenn voru málinu andvígir og ekki þótti hættandi á að taka mál til síðustu umræðu þegar svo skammt lifði af þingi. Sama ástæða liggur að baki því að þingsályktunartillaga sjálfstæðismanna um svokallað „íslenskt ákvæði“ í Kyoto-bókuninni var ekki afgreidd þrátt fyrir að þeir hafi lagt á hana mikla áherslu. Vinstri græn voru ályktuninni andvíg. Að síðustu má nefna að málefni listaverka bankanna liggja enn óbætt hjá garði, þrátt fyrir tvær þingsályktunartillögur og frumvarp Kristins H. Gunnarssonar um að færa þau í ríkiseign. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Sjá meira