Kosningaskýring: Samningsstaða VG hefur versnað Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 25. apríl 2009 23:40
Þótt Vinstri grænir geti vel unað við kosningaútslitin, enda auka þeir þingmannafjölda sinn um fjóra menn, er staðreyndin samt sú að samningsstaða þeirra hefur versnað. Einkum hvað varðar aðildarviðræður við Evrópusambandið sem var höfuðstefnumál Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni. Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar benti á það í kvöld að ef úrslitin standi sé kominn þingmeirihluti fyrir aðildarviðræðunum. Þetta er ekki alveg nákvæmt því a.m.k. þrír af núverandi þingmönnum Framsóknarflokksins eru gallharðir ESB andstæðingar og keyrðu kosningabaráttu sína m.a. á þeim nótum. Þessir þingmenn munu þó styðja forystu flokksins ef möguleiki er á stjórnarþátttöku með því að samþykkja ESB viðræður. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á von á því að stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verði endurnýjað ef stjórnin fær eins stóran meirihluta og fyrstu tölur benda til. Samkvæmt fyrstu tölum eru stjórnarflokkarnir með 36 manna meirihluta. Hinsvegar á eftir að semja um framhald samstarfsins og það gæti reynst erfitt. Spurning er hvernig Vinstri grænir ætla að bregðast við stöðunni og hvort eða hve mikið þeir eru tilbúnir að gefa eftir hvað varðar ESB. Meðal annars má velta þeim möguleika upp að þeir fallist á að þingmannafrumvarp, en ekki stjórnarfrumvarp, verði lagt fram um aðildarviðræðurnar og þá ráði meirihluti á þingi hvort af viðræðunum verður eða ekki. Það er allavega ljóst að Samfylkingin mun knýja á um að farið verði í aðildarviðræður strax en ekki beðið með málið eins og hugur Vinstri grænna hefur staðið til. Það er greinilega vilji af hálfu beggja stjórnarflokkanna að halda samstarfinu áfram og spennandi verður að sjá hvernig lendingu forystumenn Samfylkingarinnar og Vinstri græna ná í ESB málinu. Samfylkingin hefur í bakhöndinni að semja við Borgarahreyfinguna og Framsókn um stjórnaraðild en sá kostur þykir snöggtum lakari en áframhaldandi samstarf við Vinstri græna. Þótt Vinstri grænir hafi ekki náð því fylgi sem skoðanakannanir gáfu til kynna bætir flokkurinn við sig sama þingmannafjölda og Samfylkingin. Og Steingrímur J. Sigfússon formaður flokksins má vel við una í kjördæmi sínu. Er þetta raunar í fyrsta sinn sem Vinstri grænir fá fyrsta þingmann kjördæmis í sögu flokksins. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á von á því að stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verði endurnýjað ef stjórnin fær eins stóran meirihluta og fyrstu tölur benda til. Álitsgjafar: Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur, Bjarni Harðarson bóksali, Svanborg Sigmarsdóttir blaðamaður, Birgir Guðmundsson kennari, Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira