Ungum kynferðisbrotamönnum fjölgar 5. mars 2009 18:42
Ungum kynferðisbrotamönnum hefur fjölgað um 65% á þremur árum. Yngstu gerendurnir eru allt niður í 10 ára og eru dæmi um að brotin séu grófari en tíðkast hjá fullorðnum gerendum. Barnahús heldur utan um gögn er varða ung fórnarlömb kynferðisofbeldis, en þar koma einnig til meðferðar mál ungra gerenda. Upplýsingar eru nú fyrirliggjandi sem sýna að árið 2006 komu 37 slík mál inn á borð Barnahúss, 45 árið 2007 og 61 árið 2008. Þetta er gríðarleg fjölgun mála. Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndastofu segÞessi þróun er í reynd mikið áhyggjuefni því vegna þess að það er vitað að langflestir fullorðnir brotamenn hefja sinn brotaferil sem börn, þe. yngri en 18 ára sem unglingar. Og eins og í öðrum kynferðisbrotamálum eru fórnarlömbin í 80 til 90 prósent tilfella kunnug gerandanum. „En börnin geta verið mjög ung allt niður í örfárra ára, niður í kornabörn og þessi brot geta verið mjög alvarleg. Það er stundum sagt, þó það hafi ekki verið gerð rannsókn á því hér á Íslandi, en erlendis hefur það verið gert og okkar tilfinning er sú að það sé ekki mjög ólíkt hér, að ungir brotamenn að þeir brjóta oft af sér með grófari hætti að sumu leyti en þeir eldri, þeir eru líklegri til að beita afli, hótunum og öðru þvíumlíku og því eru þessi brot oft mjög árásargjörn í eðli sínu," segir Bragi. Einungis um þriðjungur ungra gerenda í kynferðisbrotamálum er sakhæfur, það er á aldrinum 15 til 18 ára. Meirihlutinn er yngri og hefur réttarvörslukerfið þar af leiðandi ekki afskipti af þeim einstaklingum, þeir sæta því hvorki kærum né hljóta dóma. „Þannig að þetta spannar mjög breitt aldursbil alveg niður í mjög unga einstaklinga. Alveg niður í kannski 9-10 ára... ekki algengt, en dæmi um það og jafnvel gróf kynferðisbrot," segir Bragi. Klámvæðing og aðgengi að grófu efni í tölvuleikjum og á netinu er talin ýta með beinum hætti undir óeðlilegar kynferðislegar hvatir drengja og valda mikilli aukningu á kynferðisbrotum í þessum aldursflokki. Auglýst hefur verið eftir sérfræðingum til að annast sérhæfða meðferð ungra gerenda og er vonast til að unnt sé að hefja hana í byrjun næsta mánaðar. Sé ekkert að gert eru meiri líkur en minni á að hegðunin haldi áfram, en beitt er hugrænni atferlismeðferð og svonefndri áhættugreiningu, sem er til þess fallin að einangra þann hóp sem verst er staddur. „Það er sá hópur sem við þurfum sérstaklega að ná til og fjölskyldum þeirra, en foreldrar skipta náttúrulega mjög miklu máli í þeirri vinnu allri saman. Þeir þurfa að fá leiðbeiningar og hjálp til að glíma við þessa hegðun," segir Bragi.
Mest lesið Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Fékk hláturskast í ræðustól Innlent Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Innlent Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Erlent Lögreglan lýsir eftir Sigríði Innlent Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Innlent Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Innlent „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Innlent „Það er svo mikið rugl í gangi“ Innlent Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Sjá meira