Enski boltinn

Torres: Getum unnið öll lið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Torres fagnar í dag.
Torres fagnar í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty

Fernando Torres kom aftur inn í lið Liverpool í dag og þessi magnaði framherji sýndi snilli sína enn á ný er hann kom Liverpool yfir í leiknum.

Hann afgreiddi þá Rio Ferdinand listilega áður en hann klíndi boltanum í netið. Virkilega smekklega gert.

„Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur. Við erum afar ánægðir með stigin í dag og verðum að halda áfram á þessari braut," sagði Torres en aðeins munar fjórum stigum á Liverpool og Man. Utd eftir leikinn.

„Eftir þennan leik þar sem við unnum saman og börðumst grimmilega þá er ljóst að við getum unnið hvaða lið sem er. Við verðum að pæla vel í þessu núna - að spila saman sem lið og vera betri en við höfum verið í síðustu leikjum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×