Í sínu þriðja opinbera starfi á árinu 5. september 2009 18:33
Einar Karl Haraldsson, nýráðinn upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, er í sínu þriðja starfi á árinu hjá hinu opinbera. Auk þess að þiggja biðlaun, hefur hann gengið í tvö störf hjá hinu opinbera sem ekki voru auglýst. Tilkynnt var í vikunni að Einar Karl Haraldsson, hafi verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneyti. Einar Karl er ráðinn til hálfs árs. Staðan var ekki auglýst. Forveri hans, Kristján Kristjánsson hætti, þegar ráðningarsamningur hans rann út. Ekki var heldur auglýst eftir hans kröftum á sínum tíma. Þetta er ekki fyrsta starfið sem Einar Karl hefur tekið að sér fyrir hið opinbera í ár. Hann var aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, sem var iðnaðarráðherra. Hann fór svo á biðlaun, þegar Össur flutti sig yfir í utanríkisráðuneytið. Síðan tók hann að sér verkefni fyrir Landspítalann. Ekki var auglýst eftir nokkrum í það starf, svo vitað sé, en þar mun Einar Karl hafa verið verktaki; en féð til spítalans kemur að megninu til úr sameiginlegum sjóðum. Hann hefur í sumar verið á biðlaununum áfram, en samt sem áður tekið að sér verkefni í forsætisráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur. Nú hefur hann verið ráðinn þangað. Hefði er fyrir því og heimild að ráðherrar séu með aðstoðarmann; en þeir hafa oft verið fleiri - yfirleitt ráðnir tímabundið - og verið kallaðir ýmsum nöfnum. Til að mynda var Ólafur Ragnar Grímsson, með þrjá aðstoðarmenn þegar hann var fjármálaráðherra; einn var aðstoðarmaður, annar efnahagsráðgjafi og þriðji upplýsingafulltrúi.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Fleiri fréttir Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Sjá meira