Erfitt að innheimta arð eigenda Sjóvár Höskuldur Kári Schram skrifar 19. júlí 2009 13:05 Steingrímur J. Sigfússon
Fjármálaráðherra telur að það verði tæknilega erfitt að innheimta til baka þann arð sem eigendur Sjóvár greiddu sjálfum sér á undanförnum árum. Ríkið lagði í byrjun mánaðarins 16 milljarða króna í félagið til að bjarga því frá þroti. Sjóvá tapaði 30 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt tilkynningu sem skilanefnd Glitnis sendi frá sér í síðustu viku. Bankinn hefur nú tekið yfir rekstur félagsins en nettó skuldir námu í lok síðasta árs um 16 milljörðum króna. Nýtt félag var stofnað í kringum vátryggingarstarfsemi Sjóvár í byrjun mánaðarins og setti ríkið 16 milljarða í félagið til forða því frá þroti. Sjóvá var áður að stærstum hluta í eigu Milestone, eignarhaldsfélags bræðranna Karls og Steingríms Wernersona. Á árunum 2006 til 2008 fékk Milestone greidda rúma 17 milljarða í arð frá Sjóva - eða einum milljarði meira en það sem ríkið hefur nú sett í félagið. Starfsemi Milstone og Sjóvár er nú í rannsókn hjá sérstökum saksóknara en rannsóknin beinist meðal annar að meintri misnotkun á bótasjóði fyrirtækisins. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, telur ólíklegt að hægt verði innheimta arðgreiðslur til baka en Milstone hefur nú óskað eftir nauðasamningum við lánadrottna sína. „Ég veit ekki hvort það sé lagalega, tæknilega gerlegt," segir Steingrímur. „Þessi spurning hefur komið upp í fleiri tilvikum þar sem menn greiddu sér ríflega út arð skömmu áður en allt hrundi og lítur skelfilega út. En þið vitið hvernig mál Sjóvár standa. Þetta er allt komið í rannsókn hjá sérstökum saksóknara og við verðum bara að bíða þess að niðurstöður fáist í því. Þar á meðal væntanlega hvernig menn fóru með málefni fyrirtækisins ekki bara að þessu leyti heldur öllu öðru."
Mest lesið Íslendingur á válista CIA árið 1970 Innlent Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Erlent Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Erlent Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Innlent Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Erlent Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Erlent Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Innlent Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Innlent Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Innlent Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Innlent Fleiri fréttir Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Sjá meira