Eigandinn mætti þjófnum á rúntinum og lét lögreglu vita Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 19. júlí 2009 20:55 Bíll Sigurðar var áþekkur þessum.
Sigurður Ingólfsson, eigandi Toyota Yaris bifreiðarinnar sem lögregla veitti eftirför í kvöld, mætti bílnum á Seljabraut í Breiðholti og lét lögreglu vita. Þegar þjófurinn varð var við að sér væri veitt eftirför setti hann allt í botn. „Ég fékk lánaðan bíl og ákvað að fara að svipast um eftir bílnum. Svo þegar ég var að aka Seljabrautina mætti ég bílnum á rúntinum," segir Sigurður sem ákvað þá að veita bílnum rólega eftirför. „Ég keyrði á eftir honum framhjá Select bensínstöðinni í Breiðholti. Svo þegar við erum að nálgast Vesturbergið þá tekur hann eftir mér og setur allt í botn og stendur bílinn út Vesturbergið," segir Sigurður sem sá lögreglubíl við hinn enda Vesturbergsins og ákvað því að láta þar við sitja og setja málin í hendur lögreglu. Sigurður segir að um tíma hafi allt Breiðholtið ómað af sírenuvæli. „Þetta fór á versta veg sem ég gat hugsað mér. Konan mín er kominn á staðinn þar sem bíllinn fór útaf. Við búum í Hvalfjarðasveit. Hún segir að bíllinn sé alveg í klessu og drengurinn á leið með sjúkrabíl. Þetta gat ekki farið verr," segir hann. Hann segir bílinn vera kaskótryggðan en annars viti hann lítið um hvernig svona mál eru meðhöndluð hjá tryggingum. „Verst er ef að menn slasast. Hitt eru bara peningar," segir hann. Bifreiðinni var stolið við Shell bensínstöðina í Árbæ um miðjan daginn í dag. Sigurður fór þá inn á bensínstöðina til að greiða fyrir áfyllinguna en á meðan lét þjófurinn til skarar skríða. Bíllinn var því stútfullur af bensíni að sögn Sigurðar. „Hann hefði getað keyrt hann fram á morgun þess vegna," segir hann.
Tengdar fréttir Eftirför lögreglu lauk með ákeyrslu í Hvalfirði Eftirför sem lögregla veitti grárri Toyota Yaris bifreið lauk fyrir um tíu mínútum. Lögregla ók þá utan í bifreiðina til móts við bæinn Stóra Lambhaga í Hvalfirði með þeim afleiðingum að hún lenti utan vegar og ofan í skurði. Eftirförin stóð í um 45 mínútur. 19. júlí 2009 20:22 Eigandi Yaris bifreiðar: „Þekki þjófinn hvar sem er“ Eigandi Toyota Yaris bifreiðar sem stolið var meðan hann borgaði fyrir bensín á Shell bensínstöðinni í Árbæ fyrr í dag, segist sjaldan hafa orðið jafn hissa á ævi sinni og þegar hann sá bíl sinn reykspóla í burtu. Hann segist mundu þekkja þjófinn hvar sem er. 19. júlí 2009 17:14 Bíl stolið meðan eigandinn borgaði fyrir bensín Fólksbíl var stolið við bensínstöð Shell við Hraunbæ um tvöleytið. Á meðan að eigandi bílsins var inni að greiða fyrir bensín fór maður inn í bílinn og ók honum á brott. 19. júlí 2009 14:41 Lögregla veitir Yaris eftirför Allavega sex lögreglubílar og að minnsta kosti eitt mótorhjól veita nú grárri Yaris bifreið eftirför á Vesturlandsvegi að sögn tveggja vegfarenda sem höfðu samband við fréttastofu. Ekki er vitað hvort um er að ræða Yaris bifreið sem stolið var í dag á Shell bensínstöð í Árbæ. 19. júlí 2009 19:28 Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Sjá meira
Eftirför lögreglu lauk með ákeyrslu í Hvalfirði Eftirför sem lögregla veitti grárri Toyota Yaris bifreið lauk fyrir um tíu mínútum. Lögregla ók þá utan í bifreiðina til móts við bæinn Stóra Lambhaga í Hvalfirði með þeim afleiðingum að hún lenti utan vegar og ofan í skurði. Eftirförin stóð í um 45 mínútur. 19. júlí 2009 20:22
Eigandi Yaris bifreiðar: „Þekki þjófinn hvar sem er“ Eigandi Toyota Yaris bifreiðar sem stolið var meðan hann borgaði fyrir bensín á Shell bensínstöðinni í Árbæ fyrr í dag, segist sjaldan hafa orðið jafn hissa á ævi sinni og þegar hann sá bíl sinn reykspóla í burtu. Hann segist mundu þekkja þjófinn hvar sem er. 19. júlí 2009 17:14
Bíl stolið meðan eigandinn borgaði fyrir bensín Fólksbíl var stolið við bensínstöð Shell við Hraunbæ um tvöleytið. Á meðan að eigandi bílsins var inni að greiða fyrir bensín fór maður inn í bílinn og ók honum á brott. 19. júlí 2009 14:41
Lögregla veitir Yaris eftirför Allavega sex lögreglubílar og að minnsta kosti eitt mótorhjól veita nú grárri Yaris bifreið eftirför á Vesturlandsvegi að sögn tveggja vegfarenda sem höfðu samband við fréttastofu. Ekki er vitað hvort um er að ræða Yaris bifreið sem stolið var í dag á Shell bensínstöð í Árbæ. 19. júlí 2009 19:28