Innlent

Stöðvar líka pólitík

Margrét Stefánsdóttir
Margrét Stefánsdóttir

Netvari Símans er forrit sem á að verja notendur fyrir óæskilegu efni og lokar fyrir aðgang að því, svo sem ofbeldi og klámi. Svo virðist þó sem Netvarinn loki einnig fyrir aðgang að ýmsu pólitísku efni. Þannig hafa notendur hans sagt frá því að þeir geti ekki lesið efni á róttækum pólitískum umræðusíðum, svo sem um anarkisma, eða til dæmis netsíðu tímarits Byltingarsinnaða bandaríska kommúnistaflokksins.

„Ég hugsa að við getum ósköp lítið sagt við þessu eða gert, þar sem við göngumst undir þessa síu hjá Websense, sem þykir sú besta í heimi," segir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Netvarinn komi frá Websense „og þeir eru með flokka og skanna hjá sér. Netvarinn stöðvar það sem sleppur ekki framhjá síunni hjá þeim."

Spurð hvort þessi hliðaráhrif þyki áhyggjuefni hjá Símanum segir Margrét svo ekki vera.

„Við treystum þeirra dómgreind til að loka. Svo getur fólk líka alltaf losað um síuna hjá sér, leitað og sett hana svo aftur á. Fólk er mjög ánægt með þetta og skólar eru að taka þetta í mjög miklum mæli," segir hún. Í skólunum þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að verið sé að loka fyrir frjáls skoðanaskipti, þótt lokað sé fyrir nokkrar síður. Margar aðrar komist í gegn.- kóþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×