Innlent

MND félagið gefur út hljóðbók

Guðjón Sigurðsson er formaður MND félagsins.
Guðjón Sigurðsson er formaður MND félagsins.

MND félagið hefur gefið út hljóðbókina, Björt framtíð í því augnamiði að auka mótvægi við slæmum fréttum sem hafa dunið á íslensku þjóðinni undanfarna mánuði. Bókin er safn greina eftir fimmtíu höfunda og er von félagsins að hún auki ánægju og vellíðan þjóðarinnar.

Höfundar greinanna koma úr ýmsum áttum en á meðal þeirra eru: forseti og biskup Íslands, bæjarstjórar, húsmóðir, prófessorar, verkstjórar, iðnaðarmaður, forstjórar, klæðskeri og prestar. Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands var afhent fyrsta eintakið af hljóðbókinni í útgáfuteiti félagsins á Fjörukránni í hádeginu.

Hljóðbókin er safn þriggja hljóðdiska og verður hún seld í símasölu á næstu vikum. Einnig verður hægt að panta hana í gegnum heimasíðu MND félagsins www.mnd.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×