Steingrímur: Sjávarútvegsstefna ESB í klessu Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 26. maí 2009 18:39
Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er í klessu, segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og furðar sig ekki á að sjávarútvegsráðherrar ESB ríkja hafi ákveðið í gær að draga úr miðstýringu fiskveiða innan sambandsins. Það breyti hins vegar í engu afstöðu hans til aðildar Íslands að ESB. Ráðherrarnir viðurkenndu á fundinum í gærkvöldi að núverandi miðstýring hefði mistekist hrapalega með þeim afleiðingum að um 80 prósent af fiskistofnum í lögsögu bandalagsríkjanna væru í hættu vegna ofveiði og brottkasts. Talið er að brottkastið sé slíkt að fyrir hvert kíló af þorski í Norðursjó sé öðru kílói kastað í sjóinn, samkvæmt fréttavef BBC. Þar staðfestir fulltrúi Tékklands einnig að að einróma stuðningur sé hjá sjávarútvegsráðherrunum við að færa meira vald yfir fiskveiðum til aðildarríkjanna. Einhver þyngstu rökin gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu hafa verið að við inngöngu myndi þjóðin framselja stjórn fiskveiða til Brussel. Frosti Sigurjónsson, í framkvæmdaráði Heimssýnar, samtök sem eru yfirlýstir andstæðingar Evrópusambandsaðildar, er ekki upprifinn og minnir á að ESB geti hvenær sem er ákveðið að auka miðstýringu á ný. Hann líti því ekki svo á að helsta hindrun fyrir inngöngu Íslendinga félli niður ef fiskveiðistjórnun yrði færð til aðildarríkjanna. Ekki yrði tryggt að svo yrði til langframa nema Lissabon sáttmálanum yrði breytt. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna segir ákvörðun ráðherranna heldur í engu breyta afstöðu sinni til inngöngu Íslands. Evrópusambandið hafi margoft lýst yfir vilja til að breyta sjávarútvegsstefnu sambandsins, án árangurs enda kæmi hagsmunapólitík landanna ævinlega í veg fyrir vitræna niðurstöðu í því efni.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Sjá meira