Innlent

Reykingamaður kveikti í hurð

Reykingamaður kveikti í hurð.
Reykingamaður kveikti í hurð.

Lögreglan og slökkviliðið í Vestmannaeyjum voru kölluð að heimili við Brimhólabraut um helgina vegna elds sem hafði kviknað við hurð hússins.

Þegar lögreglan og slökkvilið kom á vettvang var húsráðandi búinn að slökkva eldinn með handslökkvitæki.

Talið er að eldsupptökin hafi verið út frá sígarettu sem einn íbúi hússins hafði skömmu áður verið að reykja fyrir utan húsið.

Ekki var um mikið tjón að ræða samkvæmt lögreglunni í Vestmannaeyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×