Innlent

Eldur í gámi við Hamraborg

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hamraborg í Kópavogi. Þar kviknaði eldur í gámi eftir hádegið. Mynd/ Heiða Helgudóttir.
Hamraborg í Kópavogi. Þar kviknaði eldur í gámi eftir hádegið. Mynd/ Heiða Helgudóttir.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Hamraborg í Kópavogi rétt eftir hádegi í dag. Þar logaði eldur í gámi. Samkvæmt upplýsingum frá fréttastofu var þó um lítinn eld að ræða og var hann fljótlega slökktur.

Þá var slökkviliðið kallað að fjölbýlishúsi í Hafnarfirði þegar að reykjarlykt fannst í stigagangi hússins. Enginn eldur var í íbúðinni sem reykurinn kom frá en hjá slökkviliðinu fengust þær upplýsingar að enn væri ekki ljóst hvað hefði orsakað reykjalyktina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×