Innlent

Vill vita um skilyrði fyrir áframhaldandi starfi Josefsson

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eygló Harðardóttir vill vita um skilyrðin fyrir starfi Mats Josefsson með samræmingarnefndinni. Mynd/ GVA.
Eygló Harðardóttir vill vita um skilyrðin fyrir starfi Mats Josefsson með samræmingarnefndinni. Mynd/ GVA.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, hyggst leggja skriflega fyrirspurn fyrir viðskiptaráðherra um það hvaða skilyrði Mats Josefsson setti fyrir áframhaldandi starfi sínu í samræmingarnefnd um endurreisn bankakerfisins.

Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær hótaði Josefsson að hætta sem formaður nefndarinnar vegna mikillar óánægju með hægagang við endurskipulagningu bankanna.

Tryggvi Þór Herbertsson og Guðlaugur Þ. Þórðarson þingmenn Sjálfstæðisflokksins spurðu báðir að því á Alþingi í dag hvaða skilyrði Josefsson hefði sett. „Formaður viðskiptanefndar virtist ekki geta svarað þessu. Viðskiptaráðherra gat svarað en hann virtist ekki ætla sér að svara vegna þess að hann var þrisvar sinnum spurður að þessu," segir Eygló.

Jóhanna Siguðardóttir sagði á Alþingi í gær að Josefsson hefði gert þær athugasemdir að endurreisn bankakerfisins tæki of langan tíma. Hún gæti tekið undir það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×