Yossi notaði legköku úr manneskju Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2009 12:15 Yossi Benayoun í leik með Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Yossi Benayoun hefur greint frá því að legkakan sem var notuð þegar hann fór til Serbíu í óhefðbundna meðverð vegna meiðsla sinna hafi verið úr manneskju en ekki hesti. Legkökunudd serbnesku konunnar komst fyrst í fréttirnar þegar Robin van Persie, leikmaður Arsenal, greindi frá því að hann myndi fara þangað vegna meiðsla sinna. Síðan var greint frá því að Liverpool hafi sent þá Benayoun, Glen Johnson, Albert Riera og Fabio Aurelio einnig til Serbíu svo þeir gætu einnig fengið legkökunuddið góða. Talsmaður Liverpool hélt því fram að legkökurnar sem hafi verið notaðar í nuddinu væru úr hestum. En Benayoun staðfesti í samtali við enska fjömiðla að í hans tilfelli hafi legkakan sem notuð var komið úr manneskju. „Læknirinn hefur haft marga leikmenn til meðferðar hjá sér," sagði Benayon. „Hún útskýrði allt fyrir mér áður en meðferðin hófst og sagði mér að hún myndi nota vökva úr legköku frá konu." Benayoun sagði að engar sprautur hafi verið notaðar. „Það fór ekkert inn í vöðvann sjálfan. Þetta snerist um að nudda vökvanum á svæðið þar sem meiðslin voru." „Þetta gerði það að verkum að ég gat spilað og hjálpað mínu liði innan tveggja vikna frá meiðslunum," sagði Benayoun en upphaflega var búist við því að hann yrði frá í fjórar vikur. Hann skoraði jöfnunarmark Liverpool gegn Manchester City um helgina en leikurinn fór 2-2.
Mest lesið Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sjá meira