Guðrún María á tónleikum í dag 5. nóvember 2009 04:15 tónlist Guðrún María Finnbogadóttir sópran.
Mætt er til landsins Guðrún María Finnbogadóttir sópran sem hefur dvalið lengi í Englandi við nám og störf. Hún heldur tónleika í Hafnarborg í hádeginu við undirleik Antoníu Hevesi. Guðrún María Finnbogadóttir sópran flytur þar tilfinningaríkar aríur meðal annars eftir Händel. Hefjast tónleikarnir kl. 12.15. Guðrún María Finnbogadóttir stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi árið 1993. Sama ár sigraði hún í Tónvakakeppni Ríkisútvarpsins og kom af því tilefni fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói. Fyrir Íslands hönd fór hún í keppni ungra norrænna tónlistarmanna og varð í þriðja sæti. Hún fór til Ítalíu í nám, þaðan til London þar sem hún var við nám bæði við Guildhall School of Music And Drama og Royal Academy. Hún hefur sungið á ýmsum tónleikum, meðal annars undir handleiðslu Osma Venska og Sir Colin Davis og í óperuuppfærslum í Evrópu, meðal annars á samningi hjá European Opera Centre. Hádegistónleikar hafa verið fastur liður í starfi Hafnarborgar frá árinu 2003. Þeim hefur verið mjög vel tekið og komast stundum færri að en vilja. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá byrjun verið listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar en margir af fremstu söngvurum þjóðarinnar hafa komið fram með henni á hádegistónleikum en fram að jólum verða tónleikarnir helgaðir söngvurum sem hafa markað sér starfsvettvang á erlendri grund.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira