Nærri fjörutíu frambjóðendur til Alþingis brjóta lög 5. nóvember 2009 06:00 Alþingi 281 af 318 frambjóðendum hafa skilað inn upplýsingum til Ríkisendurskoðunar. Þar af hafa 43 skilað inn fjárhagslegu uppgjöri, sem þýðir að þeir eyddu meira en 300 þúsund krónum í framboð til alþingiskosninga .Fréttablaðið/Pjetur
Alls 37 frambjóðendur til síðustu alþingiskosninga áttu enn eftir að skila upplýsingum um kostnað við framboð sitt til Ríkisendurskoðunar í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisendurskoðun brjóta þessir frambjóðendur því lög um fjármál stjórnmálasamtaka, en slík brot geta numið allt að sex ára fangelsi, séu þau framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Samkvæmt lögunum er hverjum frambjóðanda sem eyðir meira en 300 þúsund krónum í framboðið skylt að skila inn fjárhagslegu uppgjöri. Hinum sem eyða minna er skylt að skila inn einfaldri yfirlýsingu um það. Frambjóðendurnir hafa haft ríflega hálfs árs frest til skilanna og Ríkisendurskoðun hefur ítrekað skilafrestinn, sem var til 23. október. Þá hafa sumir fjölmiðlar fjallað um þetta mál síðustu vikur, og um skilin hingað til. Meðal þeirra sem ekki höfðu skilað inn upplýsingunum í gær eru Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Einnig Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Nítján frambjóðendur VG höfðu engum upplýsingum skilað og ellefu frambjóðendur Sjálfstæðisflokks. Fimm frambjóðendur Frjálslynda flokksins og tveir frá Samfylkingu höfðu heldur ekki skilað upplýsingum. Þegar skilafrestur rann út 25. október áttu hátt í níutíu eftir að skila. Þeim hefur því fækkað mjög. Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun, segir enn óákveðið hvenær stofnunin kæri eftirlegukindurnar. „Í sjálfu sér munum við halda þessari skrá opinni fyrst um sinn þannig að við uppfærum hana ef okkur berast skil, en auðvitað kemur að því að við lokum henni og þá stendur upp á okkur hvað við gerum við svörtu sauðina,“ segir hann. Lárus á þó ekki von á því að á það reyni, fólkið hljóti að skila um síðir. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Fleiri fréttir Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi Sjá meira