Þátttaka á mörkum þess að vera fullnægjandi 14. febrúar 2009 16:42 Matthías Halldórsson, landlæknir.
Nýjar upplýsingar úr miðlægum bólusetningagrunni benda til þess að þátttaka í bólusetningu virðist vera á mörkum þess að vera fullnægjandi. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Þar kemur fram að bólusetning gegn mislingum, rauðum höndum og hettusótt skipti sköpum. Einn greinst með hettusótt á árinu Í janúar á þessu ári greindist einn sjúklingur hér á landi með hettusótt. Hann var óbólusettur og nýkominn frá Bretlandi þar sem hópsýkingar af völdum hettusóttar hafa greinst í óbólusettum einstaklingum. Þá hafa hópsýkingar af völdum mislinga verið að greinast hjá óbólusettum einstaklingum í Sviss, Bretlandi, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. ,,Góð þátttaka í bólusetningu gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum hér á landi er því afar mikilvæg svo hægt sé að bægja þessum sjúkdómum frá endaeru þetta hættulegir sjúkdómar," segir á vef Landlæknisembættisins.Miðlægur bólusetningagrunnur Frá 2003 hefur verið unnið að því á vegum sóttvarnalæknis að koma á laggirnar gagnagrunni með upplýsingum um allar bólusetningar á Íslandi, en til þessa hafa þessar upplýsingar aðeins verið aðgengilegar á þeim stöðum sem bólusett var. Sem stendur hefur verið safnað í grunninn upplýsingum um 530 þúsund bólusetningar á Íslandi. Í ljós kemur að hér á landi er þátttaka í bólusetningum almennt mjög góð á fyrstu tveimur árunum nema hvað varðar bólusetningu gegn hettusótt. Brýnt að auka þátttöku barna ,,Þessar upplýsingar eru mikið áhyggjuefni því að með svo lítilli þátttöku má búast við faröldrum hér á landi af völdum hettu sóttar, mislinga eða rauðra hunda." Brýnt verkefni er því að auka þátttöku barna í bólusetningu svo að koma megi í veg fyrir að alvarlegar sýkingar eins og mislingar blossi upp hér á landi, að mati embættisins.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira