Tilnefndur hættir í valnefnd Grímunnar 3. júní 2009 09:19 Rúnar Guðbrandsson
Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri sýningarinnar Steinar í djúpinu, sem hlaut tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar, í ár skipaður af Félagi leikstjóra á Íslandi til setu í valnefnd Grímunnar, hefur óskað þess að vera alfarið leystur frá störfum í nefndinni og komi ekki að kjöri á verðlaunahöfum Grímunnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Viðari Eggertssyni forseta Leiklistarsambands Íslands. Þá segir að Rúnar taki ákvörðunina svo enginn skuggi megi falla á Íslensku leiklistarverðlaunin, Grímuna, né á hugsanlega verðlaunahafa. Viðar segir að stjórn leiklistarsambands íslands virði þá ósk og þakkar honum störf hans. Þá segir í opnu bréfi frá Rúnari að hann óski eftir ógildingu atkvæða sinna í seinni hluta kosninganna um verðlaunahafa Grímunnar í öllum flokkum sem valnefndin kaus um af tilnefningum sem fyrir lágu. „Ákvörðun þessa tek ég vegna þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað um setu mína í valnefnd, sem hefur verið reynt að gera tortryggilega. Hún samræmist þó öllum verklagsreglum og eðli Grímuverðlaunanna sem eru viðurkenning sem starfandi sviðslistamenn veita þeim verkefnum og listamönnum sem þeir telji að skari fram úr á hverju leikári. Skipulag kosninganna, vægi hvers atkvæðis og fjöldi valnefndarmanna kemur í veg fyrir að einn einstakur valnefndarmaður geti haft óeðlilega mikil áhrif á niðurstöðuna. Ég tel því setu mína og annarra valnefndarmanna hafna yfir allan vafa og hef lagt metnað minn í að sinna störfum mínum í valnefnd Grímunnar af trúverðugleika og fagmennsku. Þó svo að atkvæði mín séu aðeins lítill hluti þeirra atkvæða sem greidd eru og gætu ekki ein og sér haft nokkurt úrslitavald í því hver verðlaunin hljóti, þykir mér rétt að framansögðu að hefja kjörið enn frekar yfir allan vafa, hversu lítill sem hann kann að vera og að heiður Grímunnar gangi fyrir í einu og öllu, sem og þeirra listamanna sem hafa unnið með mér að sýningunni Steinar í djúpinu. Rétt er að taka fram, að vegna verklagsreglna Grímunnar, veit ég ekki hverjir aðrir valnefndarmenn eru og hef ekki getað haft áhrif á störf þeirra. Með ósk um að ef sýningin Steinar í djúpinu, eða listamenn hennar hljóta verðlaun, sé það öllum ljóst að ég hafi ekki átt nokkurn hlut þar að máli, heldur hafi svo orðið vegna þess faglega mats sem þeir valnefndarmenn sem fyrir eru, hafa lagt á störf þeirra," segir í bréfi Rúnars.Umfjöllun Stöðvar 2 um málið frá því um helgina má sjá hér.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira