Innlent

Fáir nýta sér lán til viðhaldsverkefna

Húsum haldið við Sjaldan eða aldrei hefur verið eins ódýrt að ráðast í viðhald á íbúðarhúsum og sumarbústöðum. Fréttablaðið/Arnþór
Húsum haldið við Sjaldan eða aldrei hefur verið eins ódýrt að ráðast í viðhald á íbúðarhúsum og sumarbústöðum. Fréttablaðið/Arnþór

Viðhaldsvinna hefur tekið kipp eftir að stjórnvöld réðust í átak í febrúar til að auðvelda viðhald á húsnæði og skapa þannig störf fyrir iðnaðarmenn. Þetta er mat starfsmanna Samtaka iðnaðarins. Lítið er hins vegar um að menn nýti sér lán til verkanna sem þeim standa til boða frá Íbúðalánasjóði.

„Menn finna fyrir að vinna við viðhald hefur tekið kipp,“ segir Árni Jóhannsson, forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins.

„Þetta hefur hins vegar ábyggilega ekki farið eins bratt af stað og menn vonuðust til,“ segir hann. Vegna þess að aðgerðirnar eru tímabundnar hafi menn búist við skjótari viðbrögðum.

Árni segir átakið enn fremur mikilvægt til að sporna við svartri atvinnustarfsemi, enda sjái fáir ástæðu til þess lengur að gefa ekki vinnu sem þessa upp til skatts.

Í aðgerðunum fólst bæði að heimildir Íbúðalánasjóðs til að veita lán til viðhaldsverkefna voru rýmkaðar sem og að endurgreiðsla virðisaukaskatts af viðhaldsverkefnum var aukin úr sextíu prósentum í 100 prósent.

Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir aðgerðirnar ekki hafa aukið lánveitingar sjóðsins. „Nei, sannast sagna hafa verið mjög lítil viðbrögð við þessu. Það hefur nær ekkert reynt á þetta enn sem komið er,“ segir hann.

„Auðvitað er sumarið að fara af stað og fólk að átta sig á því að það sé hægt að fá iðnaðarmenn, sem var nú ekki auðvelt til skamms tíma. Það er kannski von til þess að menn taki sig á í þessu sambandi á næstu vikum og mánuðum,“ segir hann.

„Mín tilfinning er sú að þetta mætti ganga betur,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði og formaður Sambands íslenskra sveitar­félaga. Átakið sé þó jákvætt, feli í sér tækifæri og almennt ríki ánægja það meðal sveitarstjórnarmanna.

„Ég er alveg viss um að þetta mun skila sér hér og þar,“ segir hann, og nefnir sem dæmi að Ísafjarðarbær hafi nýlega ráðist í tuttugu milljóna króna viðhaldsverkefni sem kostar fimm ársverk.

stigur@frettabladid.is

Árni Jóhannsson
Guðmundur Bjarnason


Halldór Halldórsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×